Færslur: 2011 Apríl

24.04.2011 12:24

Gleðilega páska

Þá eru páskarnir komir og enn eitt árið erum við úti á sjó. Menn eru hættir að muna hvernig páskar í landi eru.

Hér verður allt við það sama, þó með þeirri undantekningu að kokkurinn tekur vel á því þessa helgi. Hamborgarhryggur með öllu í hádeginu og páska egg númer 4 frá N&S á eftir. Menn eru sáttir við það.

Setjum inn nokkrar myndir af strákunum á stýrimannsvaktinni þar sem þeir voru að vinna við eitt trollið fyrir nokkrum dögum.


Stýrimaðurinn eitthvað að vilja út á dekk







18.04.2011 20:30

Unglamb dagsins

Bjarni Halldórsson, netamaður og sjóhundur að vestan á afmæli í dag. Karlinn er orðinn hálfsextugur en lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 54. 

Við óskum Bjarna til hamingju með daginn og segjum bara allir í kór, X-S.
Afmælis"barnið"

15.04.2011 22:01

Helgin nálgast

Þá nálgast helgin með öllum sínum fríðindum frá kokkinum. Síðan er bara komið fínast veður og gott ef að vorið sé ekki bara í loftinu.

Menn eru vel haldnir og stresslausir, nema Hjalli sem er einhverra hluta vegna alveg á nálum, eitthvað stressaður fyrir næsta fríi.

Smellti af nokkrum myndum af strákunum í kvöld þar sem þeir bíða eftir næsta hífoppi.


Kokkurinn að þrífa eldhúsið



Lilli að hita upp fyrir nammidaginn



Alli og Júlli að ræða hvort sé betra, fellihýsi eða hjólhýsi

11.04.2011 05:19

Nokkrar myndir

Aðeins að reyna að lífga upp á síðuna sem hefur verið óvirk alveg síðan við vorum síðast á sjónum. Jóel og Co virðast alveg hafa fært sig yfir á Facebook í bili. Vonandi koma þeir sterkir inn fljótlega.

Í stuttu máli má segja að þessi túr hafi verið tíðindalítill fyrstu dagana. Veðrið hefur amk verið skárra en í síðasta túr.

Kokkurinn var með sunnudagssteik og kaffi af sinni alkunnu snilld í dag.

Verði ykkur (og okkur) að góðu.


Bjössi kokkur að baka vöfflur


Veisluborðið


Karlinn sáttur við kræsingarnar


Og þessir fírar líka


Bátsmannsvaktinn að taka í spil. Sem betur fer ekki fatapóker


En Denni væri samt alveg tilbúinn í það
  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 185
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 617050
Samtals gestir: 159559
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 02:26:56