Færslur: 2011 Febrúar
23.02.2011 12:36
Afmæli í dag
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli ég sjálfur, ég á afmæli í dag.
Og veðurguðirnir gáfu mér snarvitlaust veður í afmælisgjöf.

Afmæliskarlinn

Skrifað af GINarar
20.02.2011 15:21
Blíða úti á sjó - stormur í landi
Það má segja að þegar að loksins koma gott veður hér á Torginu þá býr forsetinn til storm í land - og kannski hér líka.
Annars er sunnudagurinn hér bara hefðbuninn - vinnan sú sama en maturinn betri. Eins og sjá má hér að neðan eru pönnukökur með kaffinu og menn sáttir við það.
Við biðjum sérstaklega að heilsa konunum okkar og óskum þeim til hamingju með daginn.

Beðið eftir ákvörðun forseta

Nonni les Fiskifréttir og hlustar á forsetann

Kokkurinn undirbýr sunnudagskaffið

Og að lokum ein fyrir Údda

13.02.2011 20:08
Áframhaldandi bræla
Héðan af Brælutorgi hins himneska ófriðar er lítið að frétta. Satt best að segja eru menn orðnir svolítið þreyttir á þessar eilífu brælu. Menn eru þó hóflega bjartsýnir á betri tíð m.v. veðurkortin.
En fyrir utan það eru menn bara nokkuð sáttir. Kokkurinn búinn að halda sitt fræga þorrablót og tóku menn hraustlega til matar síns. Og síðan fengum afgangan í morgunmat - snilld.

Lilli í morgunmatnum. Það er grjónagrautur einhverstaðar undir þeytta rjómanum

Sveitastrákurinn sáttur við þennan morgunmat

Mikið verið að ræða málinn í brúnni. Frá vinstri, Heiðar yfirstýrimaður, Kristján skipstjóri og Björgvin yfirvélstjóri

10.02.2011 18:24
Bloggið lifnar við
Þá er loksins kominn tími til að byrja að blogga. Það er reyndar orðnir 8 dagar síðan við fórum á sjó en andinn hefur bara ekki komið yfir mig fyrr en nú. Síðan tók internetþjónustuaðilinn okkar upp á því að hægja á netinu þannig að það er orðinn frekar seinlegt að blogga.
Það er styðst frá því að segja að það er búið að vera leiðindarveður síðan við fórum út. Hefur farið frá kalda yfir í snarvitlaust. Í augnablikinu er það snarvitlaust og fer versnandi.
Fórum út í brælu og það tók okkur 26 tíma að komast á miðin. Lítið dúrað síðan. Erum einskipa eins og svo oft á þessum árstíma.
Það er búin að vera ein afmælisveisla síðan við fórum út. Alli varð 50ogeitthvað í gær og óskum við honum til hamingju með daginn.
Sendum okkur bestu kveðjur í land, og þá sérstaklega til Gunna sem er í fríi þennan túr.

Alli í símanum að tala við Drífu sína

Denni og Ragnarssynir reyna að láta fara vel um sig í brælunni

- 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 185
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 617050
Samtals gestir: 159559
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 02:26:56