Færslur: 2010 Desember

22.12.2010 12:41

Gleðileg jól



Þá erum við loksins komnir á heimstím og jólafrí framunda. Það er svo sem nóg eftir að gera en menn eru sáttir eftir hreint frábæran túr og magnað ár.

Karlarnir 36 sem skipa áhöfn Guðmundar í Nesi óska lesendum gin.is og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi ár.

19.12.2010 00:01

Og núna á Nonni afmæli

Það er nóg að gera hjá kokkinum þessa daga. Afmæli hjá Gunna í gær og Nonna í dag. Karlinn orðinn 42 ára og aldrei verið hressari.

Til hamingju með daginn gamli


Afmæliskarlinn

18.12.2010 23:39

Gunni á afmæli

Næst yngsti maðurinn um borð átti afmæli í dag. Það er hann Gunni afleysningarvinnslustjóri.

Í tilefni dagsins buðu veðurguðirnir upp á skítabrælu og Bjössi kokkur upp á læri mit alles.

Til hamingjumeð daginn kútur!


Afmælissnáðinn

13.12.2010 17:28

Búnir að jafna okkur á kransæðabombunni

Vaknaðir til lífsins eftir kransæðabombuna. Hér eru spiluð jólalög út í eitt og menn bara mjög sáttir með lífið.

Kokkurinn heldur áfram með æfingabúðir fyrir jólahátíðina og menn eru duglegir að taka þátt í þeim. Þó kíkjum við reglulega niður í vinnslu til að liðka okkur.

Sendum annars hamingjuóskir til Ómars og Maríu, til hamingju með stúfinn. Skemmtilegt hvað það er lítill þyngdarmunur á feðgunum :)



Cellufundur hjá Húsavíkurmafíunni



Viltu í nefið? Viltu í nefið vinur minn?


Skarðararnir

03.12.2010 11:22

Helvítis unglinga fæði!

Í hádeginu á föstudögum hér um borð tekur kokkurinn sig til og eldar helvítis unglinga fæði eins og eldri mennirnir um borð kalla það, þar er átt við pizzur eða hamborgara. Það sem er fuðurlegast við þetta allt saman er að eldri mennirnir borða lang mest af þessu svokallaða unglinga fæði .... 

Annars er lítið að frétta af okkur... lífið hér um borð er frekar rólegt þessa dagana.


Gunni bakar bestu pizzur í heimi ... enda með marga ára reynslu frá Dominos


Keli að þykjast læra undir próf


Bjarni og machintosh dollan... en Bjarni er í fremsta klefanum í skipinu og hefur alveg verið laus við gestagang fram að þessu en það er voða vinsælt þennan túrinn að kíkja til Bjarna og ræða málin.

02.12.2010 12:22

Rólegt á Torginu

Héðan er lítið að frétta. Ekki einu sinni hægt að bulla í ykkur. Þó er hægt að segja frá því að stýrimannslærlingarnir okkar hafa nóg að gera í prófum þessa daga og sjást varla í vinnslunni.

Bjössi kokkur hefur tekið að sér að sitja yfir þeim í prófunum og fylgist vel með því að þeir svindli ekki.

Látum nokkrar myndir, sem voru teknar í morgun, fylgja með blogginu.


Yfirvélstjórinn horfir upp úr búrinu sínu



Alli í essinu sínu í vinnslunni



Selurinn Snorri kíkti í heimsókn og gaf sér tíma fyrir myndatöku með Gísla áður en honum var sleppt aftur



Jói setur verðmætin í tæki



Júlli setur upp Zoolander lookið sem hann er frægur fyrir



Nonni er kostaður af Hlað



Rúnar hálf skelfdur á svipinn enda í þjálfun hjá Nonna
  • 1
Flettingar í dag: 180
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640887
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 18:15:14