Færslur: 2010 Nóvember

28.11.2010 21:50

Jólaæfingar hafnar

Æfingar fyrir jólahátíðina hófust á fullu hér um borð í dag. Það er að segja menn byrjuðu að teygja á vömdinni. Blessaður kokkurinn er búinn að búa til strangt prógram og það hófst í dag með lambalæri, gæsabringum, gæsalærum, hreindýra- og gæsapate og ís. Menn tóku vel á.

Meira að segja GAtli er farinn að sjá að það sem Sonja hefur verið að segja um holl matarræði er tómt bull, þetta er miklu beta svona :)

En menn verða að hreyfa sig líka og hér að neðan má sjá 1/2 stýrimannsvaktarinnar í tækjum


Alli á pressunni. Hjalli vélstjóri fylgist með.


Júlli og Rúnar kassa afurðir

25.11.2010 12:34

Blíðufréttir

Allt fínt af okkur strákunum í því góða veðri sem er á Torginu þessa daga. Menn kvarta ekki ef það er blíða í des.

En það eru alltaf einhver vandamál. Nýju strákarnir eru strax búnir að fá matarást á Bjössa kokki og hafa báðir verið gripnir við að taka bakkelsi með sér inn í klefa á frívaktina. Við höfum ákveðið að leyfa það þar sem þeir eru báðir frekar horaðir og veiklulegir.

Menn hafa aðeins verið að ræða kosninar til stjórnlagarþings en þar sem við getum ekki kosið um helgina (augljóslega) stakk Keli bátur upp á því að við myndum eingöngu spila lög með Stjórninni alla helgina (hann er þekktur fyrir versta tónlistasmekk á Íslandsmiðum). Þessu var hafnað með 17 atkvæðum gegn 1.


Rúnar alveg á blístri eftir að hafa klárað 4 diskinn.


Keli bátur að reyna að minnka söknuðinn eftir Ómari með því að sýna
Gunna gamlar myndir af Omma sínum.

23.11.2010 18:35

Síðasti túr ársins hafinn

Þá er ellefti og síðasti túr ársins hafinn og Stjáni og strákarnir mættir á miðin. Menn eru bara hressir eftir fríið og klárir í slaginn.

Því miður eru tveir skipsfélagar okkar ekki með í þessum túr, en sem betur fer höfum við fengið tvo galvaska afleysningarmenn í staðinn, þá Rúnar og Gunnar.

Einnig hefur jólasveinninn látið sjá sig í upphafi túrs og lét allar gagnrýnisraddir um að hann væri of snemma á ferð eins og vind um eyru þjóta.


Jóli kominn úr rauðagallanum og fékk sér smá snæðing hjá Bjössa kokki

20.11.2010 16:35

Jólahugvekja.

Þá er nú komið að þeim tíma ársins að menn fara að hugsa um jólin og nóg gera menn af því hér um borð, skemmtilegast er nú að vera saman á sjó á aðventunni  því fátt er jafn yndislegt og að vera með félögunum og föndra fallegan krans og kveikja á kertum. Því er nú ekki að skipta þetta árið því það er hlutskipti Jollagengis að vera á sjó í nóvember og þá er engin kransagerð. En við látum það ekki á okkur fá, heldur tökum höndum saman og erum búnir að skreyta allt hátt og lágt með því skrauti sem til var um borð og einnig hafa fúsar hendur föndrað músastiga og fleira smálegt til að koma okkur í réttu stemminguna.

Stundum erum við smástund að átta okkur hvar við viljum hafa dótið en þetta reddast.


Um ganga skipsins hljóma falleg jólalög og má þá gjarnan sjá glaða og hýra sjómenn söngla með og greinilegt að alla hlakkar til helgihaldsins og ekki síst að velja og kaupa fallega gjöf handa eiginkonum og unnustum.

Við náðum engum myndum úr bakstrinum en þessi ætti að sýna hjálpsemina og gleðina sem einkennir allt hjá okkur þessa dagana.

Þeir eru vinalegir við hvern annan sjómennirnir á Guðmundi , sitjandi við föndrið og er gjarnan skipst á eftirréttaruppskrift eða sagðar hnyttnar sögur af fyrri jólum, menn aðstoða hvern annan við smákökubaksturinn og sama hvort það eru vanilluhringir, þingeyingar eða sörur, alltaf er stutt í næsta karlmann til að hjálpa manni að hnoða eða hræra.

Tréð er mannhæðarhátt miðað við meðalmann en virkar voða smátt í höndunum á þessum


Það er á stundum sem þessum að maður fyllist þakklæti og gleði, en hugsar einnig um okkar minnstu bræður sem ná ekki upp í hlutina sökum smæðar, einnig hinna sem stærri eru og ná ekki upp í hlutina vegna þess að þeir eru í eitthvað þynnra súrefni þarna uppi. En allavega þá er áhöfnin hér komin í mikið jólaskap og þó við séum snemma í því þetta árið þá langar okkur í Jollagengi að óska öllu landsmönnum til sjávar og sveita gleðilegra jóla. Þetta er svo síðasta bloggið hjá þessu gengi á þessu ári enda komnir í jólafrí, jólasveinarnir 18 eru á leið í land, við sjáumst hress á næsta ári,alltof hress.       


Pjé. Ess. Sjáið þið þessa, girnileg ekki satt ?

Stal þessari mynd frá sykurpúðunum í Stjánagengi

Það er nefnilega þannig mál með vexti að við slefuðum víst yfir 2 milljarða í þessum túrnum en fengum enga tertu af því tilefni og er aðeins búið að kvabba yfir því. Ég bauðst nú til að Photoshopa þessa mynd og breyta tölunum á henni en það kom alveg skýrt fram að það borðar enginn úr þeirri PhotoSjoppu og verður saddur af en við getum s.s. slefað yfir þessari í staðinn.

19.11.2010 16:37

Lokahnykkurinn.

Síðasta færslan í hina hliðina í þessum túr er kominn inn en það er vinnslustjórinn hann Mummi, hann þykir einstaklega vel ættaður enda að vestan að hálfu eins og svo margt gott en hann hefur nú dregið andann fyrir norðan að mestu og á að baki nokkrar vikur eða mánuði jafnvel á sjó þar.


Alltaf til í að pósa fyrir myndavélarnar ólíkt sumum skyldmennum.                                


Þessi er með mat á heilanum.

Nei ekki þannig mat heldur áhættumat, það er nefnilega þannig að það þarf að hafa reglugerðirnar og skriffinskuna á hreinu og eitt af því er að búa til áhættumat fyrir Guðmund í Nesi og er Guðmundur Bárðarson með það á sinni könnu.

Var að vakna en vel vakandi nývaknaður

Ofurljósmyndarinn Guðmundur Áskelsson vélstjóri þykir hafa næmt auga fyrir ljósmyndun en það var einmitt hann sem tók allar þessar myndir af bátnum Gypsy Life í síðasta túr sem birtust hérna á gin.is og einhverjum smærri miðlum eins og mbl.is og visir.is

Ef þú kemur nær þá lem ég þig !!!

Guðmundur Þorleifsson Slippur er afleysingamaður hjá okkur en hann er í landi núna, það er ólíkt rólegra hjá okkur hinum þegar hann er ekki um borð en Slippurinn þykir mikill ofstopamaður og kjaftfor með eindæmum.

Ein pínu kuldaleg síðan í gamla daga.

Það var nú aldrei ætlunin hjá framkvæmdanefnd ritstjórnar að blekkja neinn með þessu bulli að við kæmum fyrr í land og myndum eyða helginni konulausir í borg Allskonar,en eitthvað voru sumir bjartsýnir á að þetta væri rétt en stjórn starfmannafélagsins situr núna uppi  með 18 miða í Húsdýragarðinn og óvíst hvort hægt sé að koma þeim í verð, það tókst þó að stoppa þá af áður en þeir voru búnir að panta rútu fyrir mannskapinn upp í Árbæjarsafn en það má þó segja nýju stjórninni það til hróss að hún þykir bera af í samanburði við fyrri stjórnir þegar kemur að hugmyndaauðgi og framtakssemi. Og ekki þykir nú skemma fyrir útlitið því það mætti halda að þetta hefði verið fegurðarsamkeppni en ekki kosning í stjórn starfsmannafélags.

Annars biðjum við að heilsa öllum og bendum á að síðasta bloggið okkar á þessu ári kemur sennilega inn á morgun(laugardag)

17.11.2010 18:10

Búið að setja þennan inn.



Nei ég kem ekki neitt niður gæti Úddi verið að segja og þá er nú líklegt að vaktin hans sé fyrir neðan að syngja  lagið þjóðkunna "komdu niður"

En Úddi er semsagt kominn inn í Hina hliðina og endilega kíkjið á það. Það eru nú vart fréttir héðan að það sé skollinn á enn ein brælan en nú finnst okkur nóg komið. Við í ritnefndinni teljum nú alveg óhætt að segja frá því hérna á blogginu að við ætlum bara í land á föstudaginn og taka "menningarreisu " í borginni um helgina en halda svo heim á leið á mánudaginn sem er víst löndunardagur, konurnar vita víst ekkert af þessu og ekki lesa þær það hérna því það er alveg ljóst á "commentaleysinu" að þær eru alls ekki að líta hérna á fréttir af körlunum. Þessar fréttir jafnábyggilegar og þær nú eru hafa aldeilis farið að hressa karlana við og ljóst að það er mikil skemmtun framundan. Verðum svo endilega að ná að setja inn einn pistil um jólaundirbúninginn um borð áður en við förum í land en það er allt búið að vera á útopnu í bakstri og skreytingum síðustu daga.

15.11.2010 22:19

Vélfræði 101

Sæl öllsömul enn og aftur, það er svo mikið um að vera að við höfum varla tíma til að blogga um það allt saman en reynum samt að halda ykkur vel uppfærðum. Það er alltaf verið að hugsa um öryggismálin og voru báðar vaktir sendar í vettvangs ferð um vélarrúmið svo menn hefðu nú ágæta tilfinningu fyrir staðháttum ef t.d. kviknaði eldur og við þyftum að kippa upp einum eða tveimur vélfræðingum með okkur upp.



Agnar að lesa mönnum pistilinn og fræða þá hvað við ætluðum að gera.
Það má sjá að sumir eru með einhverjar grímur á sér en þetta eru ekki reykköfunargrímur heldur ósköp venjulegar öndunargrímur, það er nefnilega þannig að sumir Þingeyingar eru loftmeiri en aðrir og gengur dálítið af því afturúr þeim, nefni engin nöfn en það komu "einar" þrjár hugmyndir að uppnefnum fyrir viðeigandi en við tökum ekki þátt í slíku.



Elli W. Engidalsprins sá um að reka lestina og passa upp á að sauðirnir týndust ekki á leiðinni.
Það er nú ekki mikið mál fyrir karlinn, vanur smalamaður, bæði á fé og fólk.



Agnar greip tækifærið og gerði einhverskonar afgasmælingu á Þingeyingnum sem við nefndum áðan og er að útskýra að það sé komin lausn á orkuvandamálum fyrirhugaðrar stóriðju við Húsavík ef það tækist að virkja þessi ógurlegu öfl, það væri hægt að keyra á honum annan hvorn mánuð allavega.



Hann er óneitanlega kennaralegur.

Yfirvélstjórinn greip svo tækifærið að skoðuninni lokinni og fræddi menn um alla skapaða hluti í vélarrúminu, tók þá í alvöru kennslustund í fræðunum og sagði að menn væru örugglega hæfir til að leysa af eftir þetta. Var farið vítt og breytt um störfin í vélinni s.s. staðalbúnað sem er skiptilykill og WD-40 brúsi, hvernig tekinn er út neyðarrofi á millidekkinu þegar hásetarnir skæla á hjálp, reyna að tala dálítið tæknilega þegar aðrir heyra til og náttúrlega að panta smurolíu. Var ekki annað að sjá heldur en að mönnum líkaði kennslan og ekki síður fannst mönnum spennandi að vera komnir með réttindi og bíða núna spenntir eftir skírteinum.



Man nú reyndar ekki alveg hvað þetta er en held að þetta sé einhver " screensaver " fyrir einhverja leikjatölvu niður í vél.

14.11.2010 10:28

Tvö tröll í (á) hinni hliðinni

Rétt tæplega 4 metrar og eigum við að giska á 160 kg. (hóst) það eru nýjustu viðfangsefnin í hinni hliðinni. Jói og Nafni svöruðu öllu voða skilmerkilega og skorar ritstjórnin á fólk að kíkja á þetta. Hérna eru alltaf jafnlitlar fréttir, einhverjir farnir að huga að Þorláksmessu skötuna sem er búin að vera í kæsingu allan túrinn en það er fremur rólegt hjá okkur. Einhverjir hafa sýkst af O.M.F en það fer nú alltaf af mönnum þegar það fiskast meira. Annars voru okkur að berast þær fréttir að strákarnir í hinu genginu ætluðu að girða sig í brók og vera ótrúlega duglegir að blogga næsta túr og er það vel, hafa því allir strákarnir á stýrimannsvaktinni lofað að " commenta " vel og oft á bloggið hjá þeim



Jói á hliðinni.



Nafni lokar augunum svo við sjáum ekki inn í svarta sálina.



12.11.2010 16:39

Alls konar fréttir

Jamm og jæja, það er loksins búið að setja inn svörin hjá Stebba í hinni hliðinni  svo hann getur sofið rólegur héreftir og getur hætt að ónáða ritstjórn og blaðamenn gin.is. Reyndar er búið að spyrja alla stýrimannsvaktina spjörunum úr og reynum við að henda þessu inn þegar tími gefst til. Það kom þægilega á óvart og var samdóma álit allra blaðamannana að vaktin hefði komið mjög á óvart og alls ekki verið svona leiðinleg eins og svo margir vilja meina, svörin sumhver eru þannig að það má jafnvel segja að þeir séu stórskemmtilegir þessir groddar.



Þessir hafa staðið í stórræðum í dag, Agnar á millidekkinu þar sem einhver böndin fengu sjálfstæðan vilja, Stebbi í viðtölum og myndatökum og Valur ákvað að ganga til rjúpna á göngum Guðmundar í Nesi með þeim orðum að hann hefði svo oft farið í rjúpur og ekkert séð að hann gæti alveg eins gert það hérna um borð, hann er einnig í sárum en hann var víst rekinn úr Luftgítar hljómsveit bátsmannsvaktar vegna tónlistarlegs ágreinings.

En það fór pínulítið eins og við reiknuðum með varðandi síðustu færslu, það kemur í ljós að þrátt fyrir áfallahjálpina sem veitt var og við sýndum myndir af að þá situr þetta eitthvað í einhverjum.
Eins og oft vill verða við mikil áföll þá á fólk erfitt með að sjá muninn á réttu og röngu og sér
allskonar hluti  sem ekki gerðust og neitar að horfast í augu við það sem gerðist. Það var "comment frá "einni af þessum eiginkonum" í síðustu færslu með einhverri aðdróttun að hlutirnir hefðu nú ef til vill ekki verið svona eins og þeim var lýst.  Viljum við benda fólki sem finnst það ennþá eiga um sárt að binda að leita sér aðstoðar t.d. hjá félagsfræðing, presti og einnig er hægt að hringa í Já.is svo ég tali nú ekki um Orð dagsins.



Við héldum að það væru allir komnir yfir þetta.

Annars er allt frábært að frétta af okkur eða eins frábært og það getur verið í brælu á Torginu, í ekkert of miklu fiskiríi en þeir sem eru flinkir að telja eru farnir að telja niður dagana að jólafríinu.



09.11.2010 19:32

Sjómaður nær dauða en lífi í nærfötum frá Victoria Secret.

Sérkennileg fyrirsögn og alls ekki sönn en það munaði sannanlega ekki miklu að illa færi þegar hluti áhafnarinnar fór ásamt sínum heittelskuðu eiginkonum í Florida mall í margumtalaða fríinu okkar um daginn. Konurnar tóku strax til hendinni og héldu af stað til að gera góð kaup eins og Íslendinga í útlöndum er von og vísa en karlmennirnir í hópnum ákváðu að fá smá menningu í þetta ferðalag og settust inn á svokallaðan "local" veitingastað til að smakka á því sem innfæddir borða helst og drekka með lítilsháttar meiri áherslu á að drekka. Líður og bíður og öllum gengur vel, konunum að versla  og mönnunum að innbyrða menninguna og gaman að vita af svo fróðleiksþyrstum sjómönnum.

En þá af alvöru málsins, þegar dagur var að kveldi kominn og tími til kominn að halda heim á hótel þá fer að vandast málið og skýra þessar myndir að einhverju leyti málið.

Pokar frá Victoria Secret og skóbúðum fyrst og fremst.

Eins og sjá má eru komnar upp aðstæður  þar sem  menn ráða ekki alveg við hlutina og er vart hægt að ímynda sér hryllinginn ef að allt hefði farið á versta veg og stíflan hefði brostið og einhver hefði lent undir þessu fargi sem stoltar eiginkonurnar ætluðu að færa heim til fjölskyldna sinna.


Vandræðin að hrannast upp, fær hann brækurnar yfir sig ?

Takið eftir skelfingarsvipnum, örvæntingin hefur náð tökum á þeim og þeir vita ekki hvort að þetta verði að stórslysi.


Eftir á að hyggja er hægt að kenna um kæruleysi  og jafnvel heldur mikilli menningu en íslenskir sjómenn eiga að vita betur heldur en að hætta lífi sínu og limum á þennan hátt. Við nánari skoðun á myndunum er nokkuð ljóst að menn eru ekki að nota viðeigandi öryggisbúnað, hvorugur maðurinn er með hjálm, líflína hefði komið að góðum  notum og alveg öruggt að snjóflóðaýla hefði gert kraftaverk ef allt hefði farið á versta veg   og einhver lent undir farginu. Eins er rétt að minna á að ekkert áhættumat var til fyrir svona aðstæður.

Það mættu að sjálfsögðu allir úr hópnum til að styðja við bakið á ævintýrafólkinu.


Daginn eftir var nokkuð ljóst að menn höfðu orðir fyrir átakanlegri lífsreynslu og var ákveðið að hópurinn myndi hittast  og ræða málin og það yrði einskonar áfallahjálp fyrir hópinn og er það vel því greinilegt var að þetta hvíldi mikið á mönnum og ekki síður konunum sem sem höfðu í algjöru hugsunarleysi  hrundið af stað atburðarrás sem gat endað með skelfingu en endaði þó vel og voru því allir sáttir.

Áfengið á borðunum var aðallega til að deyfa sársaukann.

 

P.S. Heyrst hefur á göngunum að það standi til að búa til Hollywood mynd úr þessum atburði og segja kunnugir þetta geta verið eins konar bland af aulunum í Three Amigos og dugnaðarkonunum í Charlies Angels.  Hugsanlegt nafn gæti þá verið : Bakkabræður  og Valkyrjurnar Verslandi.


 

08.11.2010 16:13

Það geta ekki allir verið gordjöss !



En þessi fer nú létt að að því.



Með hjálm eða



hárnet, alltaf jafn svaðalega töff.
Vona að Hafdís hans Ragga sé ánægð með myndirnar af Ragga sínum.
Annars erum við næstum allir afskaplega hressir hérna um borð en það eru nú vart fréttir.
Set inn myndir af glæsilegri vaktinni líka en það er nú ekki neinn vaktarígur sem fær mig til að skrifa það heldur niðurstöður vísindalegra rannsókna og myndirnar tala svo sínu máli þannig að það þarf enginn að efast.



Bátsmaðurinn og vinnslustjórinn hressir að vanda.



Alex í action.



Einar er ekki með geislabaug eins og mætti halda í fyrstu, þetta er bara ljósið fyrir ofan hann.



Einhver annar en hinn annar hvað sem það þýðir nú er alltaf til í að pósa.

06.11.2010 10:05

Skipamyndir

Allar alvöru skipabloggsíður birta skipamyndir öðru hvoru en við ráðum illa við það hérna því að á Torginu sést varla nokkurn tíma skip, því grípum við bara í skipamyndir úr Florida ferðinni úr síðasta fríi.
Annars er það alveg stórmerkilegt hvað lítið er " kommentað " á síðuna okkar, sérstaklega af eiginkonunum, við skiljum þetta ekki enda búið að vera sýna myndir af flottustu sjómönnum landsins.
Svo endilega látið heyra í ykkur og eins ef það eru nú einhverjar óskir um myndir af einhverjum sérstökum þá er það ekkert mál, það eru allir of fúsir til að sitja fyrir.



Af einhverjum ástæðum fangaði þessi athygli okkar.



Einhverjir Sportarar á þurru.



Og líka einhverskonar geimskip en hvergi togarar !

06.11.2010 00:13

Mér þykir það leitt

Já það er leiðinlegt að þurfa að tilkynna það að haftyrðillinn sem slæddist hingað er dauður.
Hann var hálfslappur og blóðugur þegar hann náðist en virtist vera að ná sér en svona er þetta bara, maður veit aldrei hvað gerist næst í þessu lífi. Einn okkar alfróðasti fuglafræðingur fræddi okkur á því að það væri alveg öruggt að hann hefði drepist úr "skelfiskofnæmi"



Hann hangir ekki lengur hjá okkur þessi.

04.11.2010 16:45

Heppinn.

Það gerist alltaf rosalega margt á sjónum en hætturnar leynast líka víða og betra að passa sig ef ekki á að fara illa




Það slóst 3mm benslagarn í andlitið á Nafna og var hann dálítið vankaður á eftir.
Sumir sem þekkja hann vel vildu þó meina að hann hefði verið svona vankaður löngu fyrir þetta netta högg. En við vitum sem er að Nafni er Sjóhetja og og barmar sér ekki við smátterí, lét bara setja plástur á meiddið og hélt svo áfram vinnunni sinni ólíkt viðkvæma blóminu sem lét skutla sér í land um árið eftir að hafa fengið hálsbólgu.



Stefán H. greip blaðamann og vildi endilega fá að pósa aðeins fyrir einn af ljósmyndurum gin.is og var að sjálfsögðu gengið í það verk, voru margar myndir teknar en við geymum hinar til betri tíma.
Vildi Stebbi líka fá að vita hvort að hann gæti ekki fengið að vera næstur í Hinni hliðinni og verðum við að sjálfsögðu við því þannig að um leið og tími gefst til þá spyrjum við hann spjörunum úr.



Stýrimannsvaktin að ræða heimsmálin áður en þeir taka á því í vinnslunni.



Fuglabjörgunarsveit skipsins bjargaði þessu greyi á dekkinu í morgun en þetta mun vera haftyrðill.
Þarna lætur hann fara vel um sig kominn í fæði og húsnæði og bíður þess að ná heilsu áður en honum verður sleppt. Þetta er reyndar ekki eini Tyrðillinn um borð, hinn er í föstu plássi og hefur verið til fárra ára og svo sannanlega í fullu fæði en ég læt nú liggja á milli hluta hver það nú er, áhöfn skipsins hefur náð afskaplega góðum árangri við að leggja hann í einelti og geta þeir sannanlega  verið ánægðir með árangurinn, fagmenn í því eins og öðru.

02.11.2010 21:53

The fifty round club.

Hérna kemur mynd af hinu alræmda magnveiðifélagi The fifty round club en þetta eru með allra drjúgustu veiðiklúbbum landsins.



Þarna sitja þeir og horfa á þátt á RUV um hófsama rjúpnaveiði en það er borin von að svoleiðis Greenpeace áróður hafi nokkur áhrif á þessa karla ekki frekar heldur en að vondu körlunum tekst aldrei að heilaþvo James Bond. Veiði þessara manna er ekki mæld í stykkjum, tugum, tylftum eða hundruðum heldur eingöngu tæmdum dölum og heiðum, samanber : ég tæmdi 3 dali og eina heiði um helgina. Heyrst hefur innan hópsins að Karl útgerðarstjóri og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi plottað um róðraplanið þetta árið til varnar íslenskri náttúru svo þessir kappar fengju ekki of marga daga á veiðum, þessi saga er nú samt bara seld á u.þ.b. sama verði og hún var keypt á. Mælist síðuritari til þess að ofurveiðimennirnir taki nú tvo skipsfélaga sína sér til fyrirmyndar sem gárungarnir kalla The Escort Supreme club og veiði af sömu hógværð og þeir.
Flettingar í dag: 180
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640887
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 18:15:14