Færslur: 2010 Október
29.10.2010 18:47
Og nokkrar enn.
Enn erum við að henda inn misgömlum myndum af testesteróntröllunum um borð, það ættu nú sennilega allir að vera komnir í þessum hring.
Héldum að Valur væri búinn að skemma í sér málbeinið, var eitthvað svo óvenju þögull.
Þannig að hann var strappaður til öryggis eða kannske var þetta bara enn ein æfingin.

Gömul mynd af Nafna, í seinni tíð hefur hann áttað sig á að Framsókn er nú ekkert til að auglýsa og hefur þrifið áróðurinn af.

Úddi að hífa, voða íbygginn á svipinn, karlinn í símanum.

Níels að töfra fram eitthvað í gogginn á körlunum.

Skrifað af GINarar
28.10.2010 21:44
Fleiri GIN hetjur
Alex til í átökin, rússneski björninn voða kátur.
Stefán H. ekki síður tilbúinn í átök og gæti jafnvel tekið lagið svona græjaður.
Karlinn í brúnni alveg rosalega mikið að vanda sig, sennilegast pikkfastur og búinn að rífa eða ?
Skrifað af GINarar
28.10.2010 10:21
Myndir
Nokkrar gamlar og nýjar myndir af hetjum hafsins, hvar í ósköpunum annarssstaðar er þvílíkt samasafn af glæsimennum ?

Jói og Gunnþór líta upp en Skagafjarðartröllið sýnir sparihliðina.

Yfirstýrimaðurinn setti upp fyrirsætusvipinn.

Vélstjórar á fullu, væntanlega að ræða smurolíu eða einhverja svona vélstjórahluti.

Mummi og Einar Örn, sennilega að skoða gin.is

Gummi, Valdi, Raggi og Jói vinalegir á góðri stund.

26.10.2010 21:22
Matur eða ?
Það er víst bræla á miðunum núna og lítið að hafa þess vegna en við látum það nú ekkert á okkur fá enda ekkert nema karlmenn um borð í þessu skipi, við fáum afgreiðslu á Subway eins og skot, ekkert múður þar og enginn sem tók sér frí í gær. (kellingafrídaginn) En það eru nú líka viðkvæmar sálir inn á milli og gátu þeir ekki annað en stokkið til þegar sást til urtandar sem var við það að gefa upp "Öndina"og var henni umsvifalaust bjargað inn í hlýjuna og boðið upp á mat og drykk.

Þarna er krílið.

Valdi að gefa öndinni að borða.
Einhverjir grunuðu Valda um illan ásetning við fóðurgjöfina enda annálaður sælkeri og vildu einhverjir meina að það væri fyllt önd á matseðlinum hjá bátsmanninum.

24.10.2010 23:38
Strandveiðar.
Það er voða rólegt hjá okkur Ginurum þessa stundina og lítið í fréttum en við höldum bara áfram að setja inn myndir frá Daytona Beach. Þessi fyrir neðan óð í sjóinn með netadruslu og kastaði á einhverja fiska og oftast var nú einhver afli hjá honum, sennilega er hann að veiða í beitu en það voru æði margir með veiðistöng í fjörunni í Daytona. Við notum þessa aðferð sennilega lítið hérna á Torginu enda aðeins meira dýpið hér.

Sæll og glaður veiðimaður.

Svo er bara að setja aflann í flokkarann.
Það hefur víst sést til manna í fjörunni á Húsavík að reyna þessa aðferð en hitastigið í sjónum er víst voða svipað
Svo er bara að setja aflann í flokkarann.
Það hefur víst sést til manna í fjörunni á Húsavík að reyna þessa aðferð en hitastigið í sjónum er víst voða svipað
Skrifað af GINarar
23.10.2010 11:05
Vöðvabólga ?
Já það er ekki laust við það að sumir hérna um borð séu hálf aumir í öxlum, höndum og baki en það tekur mikið í að að fara í verslunarmiðstöðvarnar í Florida en þær voru einmitt hálftómar eftir að eiginkvennasveit áhafnarmeðlima hafði farið þar um og getum við karlarnir verið stoltir af dugnaði íslenskra kellinga þegar kemur að því að gera hagkvæm innkaup og rétta af fjárhag Flórida fylkis.
En við erum löngu komnir heim og nú út á sjó, allt þetta gamla góða að taka við hérna á Torginu.Ferðalagið heppnaðist frábærlega í alla staði og allir voða glaðir og strax farið að plana næstu ferð, vonandi að það verði búið að aflétta gjaldeyrishöftunum þegar það verður svo það sé hægt að gera þetta almennilega. Við hendum sennilega inn einhverjum myndum úr ferðinni ef að einhverjar myndir hafa villst hérna um borð en hérna kemur ein af hinni stórfenglegu skúnkasýningu sem haldin var á hótelinu, sumir gesta vildu nú meina að skúnkasýningin hefði verið á 5. hæðinni en það var nú misskilningur.

20.10.2010 19:48
Mættir og voða ferskir.
Jæja, Jolla gengi mætt til starfa og væntanlega verður bloggað eitthvað hérna á næstu vikum og jafnvel hent inn myndum af stæltum og sveittum karlmönnum til að laða kvenfólkið til að skoða bloggið.
En meira seinna, svo miklu meira held ég.
En meira seinna, svo miklu meira held ég.
Skrifað af GINarar
- 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 185
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 617050
Samtals gestir: 159559
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 02:26:56