Færslur: 2010 September

19.09.2010 23:42

Gypsy life

Það gerast alls konar hlutir á sjónum, í dag lentum við í smá verkefni sem við ætlum að reyna að lýsa í máli og myndum

 

Báturinn Gypsy life var að koma frá Grænlandi og leist mönnum ekkert á blikuna og því síður á kvikuna.
Eigandinn hélt að æðri máttarvöld væru að flytja lögheimilið þeirra endanlaga á Vestfjarðarmið og ákvað að hafa samband við Gæsluna og athuga hvað væri til ráða. !



Gæslan hafði samband við Guðmund í Nesi sem mætti og tók "Þýsku Sígaunana" undir sinn verndarvæng og gaf þeim skjól og einnig var gert klárt til að taka bátinn í tog ef með þyrfti eða senda menn yfir í Zodiac til að redda málum. Einnig lagði af stað björgunarbáturinn Vörður frá Patró.



Vörður mættur á svæðið en tveir menn þaðan ætluðu yfir í skemmtibátinn og sigla honum í land enda Grænlandsfararnir þar þreyttir og slæptir eftir veltingin og lætin og þá er fínt að fá bara fagfólk í verkið



Þá var bara að koma mönnunum yfir og hvernig er það nú gert.?
Að sjálfsögðu bjarga Guðmundarmenn málunum.



Zodiac sveit bátsmannsvaktarinnar Fuglarnir en hana skipa Einar ÖRN og VALUR renna af stað,taka tvö Patrósk hraustmenni af Verði, ekki var boðið upp á veitingar í þessari ferð og ekki fylgja vildarpuntar svona ferðalagi.



Smá veltingur þarna en ekkert fyrir fagfólk að hafa áhyggjur af, reyndir menn og allt það.



Mission completed. Eagle One að flýta sér í þvottinn og jafnvel að strjúka aðeins af.
Allar myndirnar tók Guðmundur Áskelsson og er fólki bent á að kíkja á Flikcr síðuna hjá honum en þar er meira af myndum af þessum æfingum öllum. Hann er þar með síðu undir nafninu g.ask.
Kann ekki að setja inn linkinn en leitið og þér munið finna.


18.09.2010 02:43

Nokkrar gamlar myndir

Sælt veri fólkið.
Við ætlum að reyna að henda inn nokkrum gömlum myndum en þær standa svo sem alveg fyrir sínu.
Allt gott að frétta hérna eins og alltaf, alla hlakkar voða til næsta túrs og geta vart beðið eftir að hittast aftur hérna um borð. Eitthvað er fólk lítið að lesa og commenta á þessa bloggsíðu okkar en við skorum á fólk að vera ekki svona helv.  feimið við að láta í sér heyra.



Alltaf sama blíðan á Torginu
Brosið á þessum í miðjunni hefur ekki farið af honum allan túrinn, veit einhver afhverju ?



Gott að vera vel varinn þegar sápan er sterk.  

Fjallmyndarlegar hetjur hafsins. 
                                            

16.09.2010 01:16

Týndi sauðurinn.

Sæl öllsömul.
Þennan túrinn urðum við Ginarar þess heiðurs aðnjótandi að einn fyrrum skipsfélagi mætti hérna til að leysa af. Þetta er enginn annar en Húsavíkur helsta von hann Gabbi. Fyrir þá sem ekki þekkja hann þá er óhætt að segja að þarna er öðlingur á ferð, góður félagi, dálítið kjaftfor og skýtur óspart á félaga sína ef þannig er gállinn á honum. Eins hefur honum tekist að færa umræðurnar á vaktinni á miklu hærra plan og er þar rætt um það sem máli skiptir í lífinu tæpitungulaust. Við vonum svo að hann sýni á sér trýnið aftur fljótlega og þökkum nýju umræðuefnin kærlega.
Viljum benda þeim á sem eru með Internet Explorer vafra að myndir eru stundum allverulega skakkar, af hverju vitum við ekki enn.



                            Gabbi er nú óttaleg dúlla eins og sjá má.



Afmælisveislan hjá Ella, gamli maðurinn að aðstoða kokkinn.
Óttalega kerlingarlegur svona.

15.09.2010 02:25

Dauðakippir

Sælt veri fólkið.
Það kann að virka eins og einhverjir dauðakippir að fara að blogga eitthvað hérna eftir þetta langa hlé en við ætlum nú samt að prófa að halda þessu aðeins áfram og sjá hvernig til tekst.
Það eru engin loforð gefin um að við verðum voða duglegir við þetta, það bara kemur ef það kemur.
Það er nú helst að frétta að meirihluti áhafnarinnar stefnir á feðalag til Florida í næsta fríi, nánar tiltekið Daytona Beach og ekki laust við að það sé spenningur í mörgum en Florida er nú þekkt sem sólarfylkið ( The Sunny State ) og einnig draga skemmtigarðarnir víðfrægu marga að en í seinni tíð er fylkið þekkt fyrir óheyrilega gott verð á rafmagnshandverkfærum og víst að margir hugsa sér gott til glóðarinnar í þeim efnum að græða aðeins í þeim geiranum.
En það sem toppar væntanlega allt annað og mesti spenningurinn er fyrir er að sjálfsögðu sýningin sem haldin verður á hótelinu en hún heitir víst  Skunks as pets show sem útleggst víst sem Skunkagæludýrasýning, okkar heimildir herma að þeir skunkarnir verði ekki á sama gangi og við en það kemur í bara í ljós.
Svo bar það nú til tíðinda að einn okkar átti stórafmæli en Elli náði þeim merka áfanga að fylla fjórða tuginn og óskum við honum innilega til hamingju með það og reynum að finna mynd af honum en eitthvað eru myndavélarnar fáar þennan túrinn.
Minnum fólk á að " commenta " svo við sjáum að þetta sé eitthvað lesið og allt í lagi að senda kveðjur á karlana.

                                                                    


Afmælisbarnið fyrir mörgum árum síðan en hann er miklu Ellilegri í dag.

  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 185
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 617050
Samtals gestir: 159559
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 02:26:56