Færslur: 2010 Maí

29.05.2010 13:12

Euro

Spennan magnast á göngum Guðmundar í nesi þar sem menn bíða spenntir eftir kvöldinu. Eru menn alveg vissir hér um borð að Hera mun taka þetta og eru sumir búnir að tapa sér aðeins og skilja ekkert í því að það sé ekki farið að selja miða á Eurovison Iceland 2011 á midi.is.

En það eru nú sennilega kosningarnar sem menn hafa frekar áhuga á í kvöld en þetta eurogaul, og eins og við má búast í svona litlu samfélagi sem togari er að skiptar skoðanir eru meðal manna. Sést hefur til samfylkingarpúkans í klefa 322 að hengja upp blöðrur á göngunum, en þar sem togarasjómaður gengur yfirleitt með hníf á sér stoppa þær stutt á göngunum.

Svo má ekki gleyma aðal fagnaðarefninu í dag en það er 20 dagar síðan CHELSEA varð enskur meistari....

myndir af kosningarvökunni væntanlegar í kvöld...



Fallegur drengur , fallegur fáni

26.05.2010 19:20

Landsins forni fjandi

Hafís hefur verið að flækjast fyrir okkur hér undanfarið og hefur færst helst til sunnarlega. Þetta sleppur þó allt, og er Guðmundur í Nesi sérstaklega styrktur til að stunda veiðar í ís.

Smelltum nokkrum hafísmyndum inn í myndaalbúm.


Smelltu á myndina til að skoða albúmið

25.05.2010 17:18

Tregt á Torginu

Það er óhætt að segja að það sé tregt hér á Torginu núna. En vonandi er það bara lognið á undan storminum - aflalega séð.

En það er annars ekki hægt að kvarta yfir veðrinu. Við höfum notað dauðan tíma til góðra verka og um daginn fór menn í ýmsar björgunaræfingar. M.a. var farið yfir það að koma slösuðum manni af togdekkinu. Voru margar aðferðir ræddar og prufaðar og á meðfylgjandi myndum má sjá stýrimannsvaktina og vélstjóra við æfingar og svo hópmynd ásamt karlinum í lokin.


Börurnar gerðar klárar



Sá slasaði kominn á börurnar


Síðan hífður upp af dekkinu


Kominn jupp á bátaþilfar


Búið að ræða æfinguna og menn stilla sér upp fyrir hópmynd

22.05.2010 04:33

Nýjar myndir

Lítið að frétta af okkur. Smelltum inn nokkrum myndum í myndaalbúm.


Smelltu á myndina til að skoða albúmið

19.05.2010 17:30

Afmæli í dag

Í tilefni þess að Keli vélstjóri átti afmæli í dag var blásið til grillveislu í hádeginu. Þetta var gert þrátt fyrir frekar leiðinlegt veður. Björgvin var yfirgrillari og er ennþá að jafna sig á vosbúðinni og reykeitruninni sem hann varð fyrir.

Annars höfum við verið að fá töluvert af þorski niður undir 500 fm. Þetta eru grindhoruð kvikindi sem við teljum að séu á leiðinni til Grænlands að fá sér í svanginn. Vitum nú ekki hvort að fiskifræðingar séu sammála því.


Keli varð 46 ára í dag


Þeir eru nú misfallegir, þ.e.a.s. fiskarnir sem við fáum í trollið

14.05.2010 13:00

Engar fréttir = Góðar fréttir

Í því þjóðfélagi sem við búum í núna má segja að engar fréttir séu góðar fréttir. Því eru góðar fréttir af okkur. Þær eru eftirfarandi.



Sorrý dömur - hann er frátekinn



Fundur í öldungadeildinni

12.05.2010 16:05

Sumarklippingin

Það er búin að vera sumarblíða síðan við fórum út. Eins og oft á þessum árstíma þá fá menn sér léttari klippingu. Það hefur gengið misjafnlega í gegnum árin og hafa sumir menn misst allt traust samstarfsfélaga sinna til þess að sinna hársnyrtingu (lesist Keli bátur).

Nú þegar hafa nokkrir fengið klippingu og sumir eru svo illa brenndir að þeir klippa sig bara sjálfir. Aðrir fara á fínustu stofuna um borð (Salon Gísli) og fá háklassa hárskurð með litun og þvotti.

Annars er allt gott að frétta, Gunni er ennþá brosandi eftir úrslit helgarinnar en við förum að hleypa honum úr tunnunni fljótlega.

Og já Finnbogi - við erum búnir að hífa :)


Þessi ætlar aldrei aftur í klippingu hjá Kela bát



Mikil einbeitning í gangi hér



Jói áhyggjufullur yfir því að vera næstur

08.05.2010 16:59

Búnir að kasta

Þá er 5 túr ársins formlega hafinn eftir að við létum trollin fara fyrir ca 1 klst. Það var blíðuveður á útstíminu og ástandið á mannskapnum gæti ekki verið betra.

Núna er bara að vona að sú gráa gefi sig næsta mánuðinn þannig að við getum haldið upp á Sjómannadaginn með pomp og pragt.

05.05.2010 05:25

Enn einn afmæliskútur.

Sælt verið fólkið.Af okkur Guðmundarmönnum er það að frétta að við erum á fullu við að taka loka þrif.Eru allir sem að vettlingum geta valdið að þrífa og græja skipið fyrir heimför.Eigum að vera í henni Reykjavík á föstudaginn 7 maí,kemur þá Stjána gengi og tekur við keflinu næsta mánuð eða svo.Enn einn kúturinn á afmæli í þessum túr og er það enginn annar en hann Stefán Hallgrímsson,en á hann afmæli á morgun 6 maí.Viljum við í áhöfninni óska honum séstaklega til hamingju með það.Sendum við boltann núna yfir á Stjána gengi að taka við blogginu og óskum þeim góðrar sjóferðar í næsta túr.Læt fylgja með mynd af afmælis stráknum okkar,vil taka það fram að hann vill harða pakka ekki mjúka.                                                                       
                                                                                                                                                  

01.05.2010 11:14

Jæja þar kom að því.

Sælt veri fólkið.Langar mig að byrja á óska öllum  til hamingju með daginn það er jú 1 maí í dag.En þá að máli málana.Það varð allt í upplausn á vaktinni í morgun,þar voru þeir nafnar í aðalhlutverki annar hélt að hann væri orðinn rambó og hinn jack bauer.Voru málavextir þannig að stærri nafninn hendir allveg óvart mjög smáum (að hans sögn)grálúðuhaus í litla nafnann,sagði hann hausinn ekki vera meira en svona 90-93 grömm.Litli nafninn segir það algjöran þvætting að haus kvikindið hafi verið extra large og hefði ekki miklu munað að hann hefði hæft hann svo ílla að sjónleysi jafnvel blinda geta hlotist af.Hemdi eldri nafninn sig á þeim stærri með því að smúla hann með köldu sjó baði(að hans sögn smá skvetta)en sá stærri bar við druknunartilfinningu.'A þeim tímapunkti gefur sá stærri þeim litla handabendingu sem hann greinilega misskildi sá stærri sagði bara hafa verið að heilsa honum,litli segir að bendingin hafi verið hrein lífhótun.Þá arkaði sá minni fram í umbúðalager  og komst stýrimaðurinn í málið og náði að róa þá félaga niður,og féllust þeir þá á að vera vinir upp frá því.Voru allveg sammála því að þeir gætu ekki án hvors verið.Vil að það fylgji að þetta kom mannskapnum svolítið á óvart,eru menn flemdir slegnir yfir þessu,því þeir tveir eru búnir að vera nánast eins og hjón hérna um borð síðastliðin 2 ár.Læt fylgja með mynd af þeim félögum.
                                                                                                                                                                                                                                                                                 
                                                                                                                                                                                                            







                                                        

  • 1
Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640882
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:53:56