Færslur: 2010 Febrúar
13.02.2010 22:00
þögninni lokið
Góðan daginn kæru vinir nær og fjær hjá okkur gengur allt sinn vanagang og allir eru hressir og kátir og veðrið hefur leikið við okkur siðustu daga og er bara alls ekki hægt að kvarta yfir þvi.En á siðustu dögum hefur ýmsilegt verið brasað og fóru menn frá okkur yfir i Brimnes að sækja varahluti og annan búnað og þökkum við félögum okkar á Brimnesi fyrir sendinguna.Síðan var haldið stærðar þorrablót um síðustu helgi og var allur þorramatur i heiminum á boðstólnum i þessari góðu veislu og voru menn saddir og glaðir alveg fram i miðja viku.Og siðan eru báðar vaktir búnar að halda björgunaræfingu i sjósetningu og notkun léttbats og kom það vel út og menn eru sammála um að gott sé að hafa svona æfingar reglulega.En svo viljum við minna fólk á að kommenta og leifa okkur að sjá hverjir lesa bloggið okkar.

Valur og Lexi á leið yfir i Brimnes

Hlaðborðið góða

Valdi spenntur að grípa i púngana:)

Jóel skipstjóri að sýna mönnum hvernig á að nota talstöðvar
Kv the Eagle yfir bloggari bátsmannsvaktar
Valur og Lexi á leið yfir i Brimnes
Hlaðborðið góða
Valdi spenntur að grípa i púngana:)
Jóel skipstjóri að sýna mönnum hvernig á að nota talstöðvar
Kv the Eagle yfir bloggari bátsmannsvaktar
Skrifað af GINarar
04.02.2010 01:01
AFMÆLISKÚTAR
Það er óhætt að segja að það sé mikil afmælisstemming um borð þessa dagana hjá okkur.Hefur síðuritari heyrt það hvissast um gangana að von sé á RISAVEISLU.Svo er það sjálfur veislustjórinn sem á afmæli í dag.1 Febrúar átti Guðmundur 'Askelsson afmæli,2 febrúar átti Alexander afmæli,og í gær átti Heiðar Valur afmæli. 'Oskum við afmælisdrengjunum til hamingju með daginn.
Þessi á afmæli í dag (Veislustjórinn)

Þessi á afmæli í dag (Veislustjórinn)
Skrifað af Gin
03.02.2010 16:42
Jóels gengi mætt á miðin.
Sæl og blessuð öll sömul.Þá er hafinn túr númer eitt á þessu ári hjá jóels gengi.Er mannskapurinn bara í nokkuð góðu ástandi eftir að hafa verið í fríi síðan fyrir jól.Þá hafa menn um borð líka verið að nýta tímann í að láta lappa uppá sig,tveir fóru í hálskirtlatöku,einn í hnútaaðgerð,svo voru einhverjir að láta draga úr sér tennur.Eru allir þessir loks búnir að finna bót sinnar meina og eru endurnærðir menn.Reynum við að vera með myndavélina á lofti eins og mögulegt er til að setja inná síðuna.
Skrifað af GINarar
- 1
Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640882
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:53:56