16.12.2009 04:43
Jólin voru að ganga í garð.Halli litli var kominn í sparifötin og beið jólagleðinnar.Hann gekk inn til ömmu sinnar.Þar ætlaði hann að stytta sér stundir,á meðan jólamaturinn var borinn á borð.Mamma og pabbi voru búin að raða jólagjöfunum umhverfins jólatréð í betri stofunni.jólabögglarnir voru marglitir og skrautlegir.Halli var óþreyjufullur.Hann var vanur að fá margar jólagjafir,en núna var erfitt að vita hvað hann hlyti að þessu sinni.Það var best að dvelja hjá ömmu um stund.Hún var vís til að segja honum sögu,en hún kunni þær margar og sagði fra að unun var á að hlýða.Hún kunni vel þá list að segja sögu.Amma Halla sat í stólnum sínum og prjónaði.Hún réri fram í gráðið.Hún var blind ,eldur augnanna var horfinn,en það var eins og hún ætti innri augu sem greindu þá hluti,er öðrum voru hulir.Æviárin höfðu rist rúnir í svip hennar.Löng og hörð lífsbaráttan höfðu gefið henni minningar,sumar daprar,en einnig aðrar,sem voru henni ljós í myrkrinu og vermdu hana á ævikvöldi.Halli brosti til ömmu sinnar.Hún faðmaði hann að sér og faldi smáar hendur hans á milli lófa sinna.Varmi og atlot þreyttra og hrukkóttra handa veittu drengnum ró og innri hlýju.Ertu kominn blessaður stúfurinn minn.Já amma mín,viltu segja mér sögu,mér finnst tíminn svo lengi að líða.'Eg hlakka svo til að fá gjafirnar og ganga í kringum jólatréið.Jú litli vinur ég skal gjarnan gera það,sagði amma.En eitt verður þú að muna.Þótt jólagjafirnar séu góðar,þá meiga þær ekki verða til þess,að þú kunnir að hætta að meta þær.Gleymdu því ekki að besta jólagjöfin sem mennirnir hafa eignast,er lítið barn,sen lagt var í jötu,af því að ekki var rúm fyrir það á gistihúsinu.Svo hóf gamla konan söguna.Þegar ég var lítil stúlka,átti ég heima í sveit.'Eg hlakkaði til jólana eins og þú.Séstaklega eru mér minnistæð jólin,sem ég nú ætla að segja frá.Frost og snjókoma hafði verið í langan tíma.Þá voru ekki miðstöfðar eða rafmagn til þess að hita upp húsin.Ylurinn frá eldavélinni,sem kynt var með sverði,hrísi eða moði frá gripunum var ekki nægur til að sigrast á kuldanum.Svo þurfti líka að spara eldiviðinn.Það logaði ekki eldur nema nokkurn hluta dagsins.Oft var því kalt og ónotalegt.'Eg man líka,að hendur minar voru bólgnar og rauðar.Kuldabólgan sagði til sín.Nokkrum dögum fyrir jól veiktist Nonni litli,bróðir minn.Honum versnaði með hverjum deginum sem leið.Pabbi varð að brjótast í næstu sveit eftir lækni hvað sem það kostaði.Við vorum aðeins fjögur á heimilinu,mamma og pabbi ég og litli bróðir minn á öðru ári.Pabbi átti því ílla heimangengt á þessum tíma árs þegar skepnur voru á gjöf.Langt var til næstu bæja og enga hjálp þar að fá,því karlmenn voru margir í kaupstaðarferðum fyrir jólin.En núna var ekki um annað að ræða en pabbi færi að sækja lækninn.Litli bróðir varð að fá hjálp ef mögurlegt var.'I bernsku minni þekktust ekki aðrar jólagjafir en einhver þörf flík.'eg fékk oftast nýja ullasokka og brydda skó og þótti mikið til koma,var glöð og ánægð.Nú vissi ég að mamma gat ekki lokið þessum kærkomnu jólagjöfum vegna veikinda Nonna litla.'Eg forðasðist að hugsa um þau vonbrigði,en bað þess heitt og innilega,að litli bróðir fengi að lifa.'I þeirri bæn gleymdi ég öllum erfiðleikum mínum. 'Eg gekk inn í svefnherbikið til mömmu.Það logaði á stóra lampanum í einu horninu.Mamma kraup við rúmstokkinn og hlúði að Nonna litla.Það var þung raun að sjá kvaladrættina í andlitinu og hlusta á kvein hans.Mamma sagði ekki neitt,en það blikuðu tár í augum hennar.Við vonuðum að pabbi kæmi sem fyrst með læknirinn þrátt fyrir veðurofsann.'eg kraup við hlið mömmu.Við grétum báðar við hvílu litla bróður.Tár okkar vættu heitar hendur hans.Bænin í saklausum augum barnsins gekk okkur í hjarta.Stormurinn hvein úti og nóttin var myrk.Loksins loksins hrikti í bæjarhurðinni.'Eg hentist fram og opnaði dyrnar.Inn úr dyrunum reikuðu tvær klökugar og fannbarðar verur,líkari ófreskjum en mennskum mönnum.Það var pabbi og læknirinn.Aðfangadagur jóla var kominn.Læknirinn og pabbi höfðu vakið alla nóttina.Þau höfðu sameiginlega gert allt,í þeirra valdi stóð til að hjálpa litla bróður.Þessa nótt áttu þau aðeins eina ósk.'Oskina sem fólst í bæninni um sigur lífsins.'Eg hafði oltið útaf í rúmi mínu í öllum fötunum og ekki vaknað fyrr en með birtu.Jólahátíðin var kominn.Pabbi og læknirinn röbbuðu saman.Mamma tendraði jólaljósin með bros á vör.'Eg sat við rúm nonna litla.Hann hreyfði sig ofurlítið og opnaði augun.Hann starði á mig um stund.Fagurt bros breiddist yfir andlitið. Þetta bros er fegursta og besta jólagjöfin,sem ég hef eignast um ævina. ÁHÖFNIN Á GUÐMUNDI Í NESI ÓSKAR LANDSMÖNNUM NÆR OG FJÆR GLEÐILEGRA JÓLA,OG ÞAKKAR FYRIR ÖLL INNLITIN Á ÁRINU.


10.12.2009 21:56
Komiði nú sæl og blessuð öll sömul.Erum við hér á Guðmundi 'I Nesi farnir að sjá fyrir endann á þessum túr,aðeins vika eftir.Verða menn sjálfsagt glaðir að fara að komast í faðm fjölskyldu sinnar,það eru jú að koma jól þannig að menn gleðjast þá allir saman sem einn.Erum núna búnir að vera 20 daga á sjó og eru menn hálf undrandi með þennan dag í dag.Það hafa undur og stórmerki skeð í dag,haldiði ekki að þeir bræður Ægir og Kári hafi ekki tekið sér frí í dag.Vonum að þeir séu komnir í langt jólafrí helst alla leið í gin jólakattarins.Látum fylgja myndir sem að Guðmundur maskínumaður PAPPARASS hefur tekið úr launsátri af áhafnarmeðLIMUM.

Hérna er ein svolítið blá af Valda Bátsmanni.

Hér er einar og Sauðárkrókurinn.

Hvað skildi nú Ragnar vera að hugsa um???Kannski jólagjafir.

Smá sýnishorn af þessum túr hjá hetjum hafsins.
07.12.2009 07:48
Góðan og blessaðan daginn allir sem einn.Það liggur í augum uppi að svikin hafa verið þau loforð um að vera duglegir að blogga (þennan túrinn) En svona er þetta bara.Af okkur er afskaplega lítið að frétta en hér um borð eru bara allir kátir og hressir.Þeir bræður Ægir og kári hafa heldur hressilega látið vita af sér síðustu daga í sannkölluðu banastuði og hef ég ákveðið að fórna einum gulllaxi í þeirra greipur í von um betri sátt við okkur hér um borð efast ekki um að árangur láti á sér standa í kvöld
Læt fylgja hér myndir af styrimannsvaktinni


07.12.2009 07:40

Okley bræður

bambus og bumbus næra sig

Einar the Eagle og gylfi hnýta fyrir pokann
01.12.2009 07:37
Góðan daginn allir saman.Héðan af Guðmundar mönnum er nú svo sem ekki neitt mikið að frétta.Gengur þetta allt saman sinn vanagang,vinna-sofa-borða-bræla.En við erum búnir að vera í brælu nánast allan túrinn,enerum nú ornir svolítið vanir því að vera hér á torginu í mis góðu veðri.Erum í einhverjum vandræðum með að setja myndir inná síðuna og koma nýjar myndir inn vonandi von bráðar.Sést hefur til sveinka á miðunum og eru menn að vona að kvikindið verði nú sangjarnn þegar að kemur að því að úthluta í skóinn.Er ég nokkuð viss um að slatti af þessum mönnum sem hér eru um borð fái nú lítið annað en jarðepli í skóinn sinn,menn uppskera sko eins og þeir sá ekki satt.
