13.02.2010 22:00

þögninni lokið

Góðan  daginn kæru vinir nær og fjær hjá okkur gengur allt sinn vanagang og allir eru hressir og kátir og veðrið hefur leikið við okkur siðustu daga og er bara alls ekki hægt að kvarta yfir þvi.En á siðustu dögum hefur ýmsilegt verið brasað og fóru menn frá okkur yfir i Brimnes að sækja varahluti og annan búnað og þökkum við félögum okkar á Brimnesi fyrir sendinguna.Síðan var haldið stærðar þorrablót um síðustu helgi og var allur þorramatur i heiminum á boðstólnum i þessari góðu veislu og voru menn saddir og glaðir alveg fram i miðja viku.Og siðan eru báðar vaktir búnar að halda björgunaræfingu i sjósetningu og notkun léttbats og kom það vel út og menn eru sammála um að gott sé að hafa svona æfingar reglulega.En svo viljum við minna fólk á að kommenta og leifa okkur að sjá hverjir lesa bloggið okkar.


                                       Valur og Lexi á leið yfir i Brimnes


                                                     Hlaðborðið góða


                                         Valdi spenntur að grípa i púngana:)


 Jóel skipstjóri að sýna mönnum hvernig á að nota talstöðvar

Kv the Eagle yfir bloggari bátsmannsvaktar
Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640882
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:53:56