10.12.2009 21:56
Jóla ekki hvað.
Komiði nú sæl og blessuð öll sömul.Erum við hér á Guðmundi 'I Nesi farnir að sjá fyrir endann á þessum túr,aðeins vika eftir.Verða menn sjálfsagt glaðir að fara að komast í faðm fjölskyldu sinnar,það eru jú að koma jól þannig að menn gleðjast þá allir saman sem einn.Erum núna búnir að vera 20 daga á sjó og eru menn hálf undrandi með þennan dag í dag.Það hafa undur og stórmerki skeð í dag,haldiði ekki að þeir bræður Ægir og Kári hafi ekki tekið sér frí í dag.Vonum að þeir séu komnir í langt jólafrí helst alla leið í gin jólakattarins.Látum fylgja myndir sem að Guðmundur maskínumaður PAPPARASS hefur tekið úr launsátri af áhafnarmeðLIMUM.
Hérna er ein svolítið blá af Valda Bátsmanni.
Hér er einar og Sauðárkrókurinn.
Hvað skildi nú Ragnar vera að hugsa um???Kannski jólagjafir.
Smá sýnishorn af þessum túr hjá hetjum hafsins.
Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640882
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:53:56