Blogg

26.11.2009

Sleðagaurinn

Halló allir sem einn.Það er loksins kominn tími á smá blogg frá okkur(við sem ætluðum að vera svo duglegir við það).Það er búin að vera bræla nánast síðan að við fórum á sjó,en er veður nú að verða skaplegt allavega í augnablikinu.Eitt sem síðuritari vill nefna er að maður sem er hér um borð er Stefán nokkur Hallgrímsson heitir er búinn að fjárfesta í vélsleða,ekkert athugavert við það.Hef ég verið með honum í sirka 2 ár um borð,á þeim tíma hefur þessi sami maður alltaf fussað og sveijað þegar að veðurfræðingurinn á rás 1 er að spá snjókomu.En viti menn fyrir þremur dögum var síðuritari vitni að því þegar að þessi sami maður tók veðrið,hann nánast umturnaðist á stundinni þegar að það kom snjókomu spá fyrir norð-austursvæði íslands.Hann var svo glaður og sæll að annað eins hefur ekki sést lengi,'Eg myndi kalla þetta við snúning íslandsögunar.Vil ég líka óska Einari Erni til hamingju með það að halda ennþá út með það að fá sér ekki ljósar strípur.En jólin eru á næsta leiti og verður erfitt fyrir hann að falla ekki í hendur rakarans.                                                                                                                                                                                                                                                                     

Skrifað 26.11.2009 kl. 15:52 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 401
Gestir í dag: 73
Flettingar í gær: 254
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 418819
Samtals gestir: 108927
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 21:25:49