31.10.2009 12:44

Gíslingurinn

Við fórum í fyrradag yfir í Brimnesið til að fresla mann sem var í gíslingu þar. Þegar við nálguðumst Brimnesið sáum við hvar síðuhurðin opnaðist og maður stóð þarna í gættinni, þegar við komum að síðunni stökk maðurinn um borð til okkar öskrandi og veinandi. Þegar við vorum að fara keyra í burtu sáum við tvo eða þrjá háseta ásamt einhverjum vélamanni vera veifandi hnefunnum og hrópandi illkvittins orðum að okkur þegar við vorum að bruna í burtu.  Hann var frekar þjakaður eftir þá meðferð sem hann hlaut þarna. Hann er búinn að vera hér í tvo daga og höfum við séð mikla bætingu á bæði andlegri og líkamlegri heilsu hans.
En annars burt frá öllu gríni þá hlaut að koma að því að veðrið lagaðist og nú er bara sjá hvort veiðin gerði það ekki líka. Það hefur verið bölvað bras á þessu hjá okkur til þessa.
Flettingar í dag: 294
Gestir í dag: 92
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612918
Samtals gestir: 158628
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 22:34:37