25.10.2009 16:19

Túrinn loksins byrjaður

Komiði öll sæl og blessuð... Það er mikið búið að ganga á síðan við fórum á hafið síðasta miðvikudagskvöld. 

Það er ekki hægt að segja að veðrið hafi tekið vel á móti okkur hér á torginu er við komum á miðin en við náðum þó að kasta 2 vörpum í fyrsta kasti en drógum ekki lengi og stóð til að setja út eina vörpu er slys varð á dekkinu og kalla þurfti til þyrluna en allt fór betur en á horfðist og braggast sjúklingurinn okkar bara ágætlega í höfuðborginni en það má þó búast við því að sjúklingurinn sé í vondu skapi akkurat núna eftir leiki dagsins :). 

Það er ekki enn búið að taka myndavélina upp úr tösku en vonandi verður það gert fljótlega..



P.S Hrönn hverjir eru á toppnum ?

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640882
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:53:56