19.10.2009 09:52

Keilu og dekurdagur.

Komiði öll marg blessuð og sæl. Allt er gott af Guðmundar mönnum að frétta, allir á fulluð að þrífa skipið hátt og lágt. Verðum í landi á miðvikudaginn í borg óttans hressir og kátir. Svo er brodway ekki langt undan hjá áhöfninni,og hefur verið skipulögð keiluferð fyrir kallanna um borð og dekur í baðhúsið fyrir betri helmingana.Er það mál manna að keilu keppnin verði ekki sanngjörn vegna liðsuppstillingar,eitt liðið er mannað vönum spilurum og einum landsliðsmanni. Þetta lið skipar Hindin(margverðlaunaður leikmaður),Valur (margverðlaunaður áhugarmaður,Ragnar (margverðlaunaður áhorfandi,og síðastur en ekki allra sístur er Níels kokkur (sem ber titil með rentu landsliðsmaðurinn)og er Níels jafnframt fyriliði liðsins.Er það mál manna að önnur lið eigi ekki mikinn mögurleika gegn þessu ógnarsterku liði Nílesar.En þangað til næst eigiði góðar stundir og hafiði það gott.Set inn eina mynd af fyrirliðanum og landsliðsmanninum Níelsi kokk.

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640882
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:53:56