02.08.2009 13:07

Þögnin rofin

Sælir velunnarar okkar til sjávar og sveita...nú er komið að því að bloggið ryðjist á stað..yfirbloggari vill koma því á framfæri að það er búið að færa hann yfir á stýrimannsvaktina og þar tíðkast bara eitt blogg í túr...og þetta er semsagt fyrsta bloggið...Af okkur er það helst að frétta að eftir svokallaða Bjarmalandsför í leit að tröllum og öðrum forynjum og stórum ísmolum.erum við aftur komnir á heimaslóðir ,Torgið góða og þá er allt svo frábært og gott... Hér um borð hafa menn verið mikið að vafra á netinu með það eitt í huga að koma aurunum sínum í lóg...menn spá í bílum,,,húsum og sérstkalega risastórum Húsbílum....og er mikið rætt um þessháttar efni..Lítill og góður strákur sem er hér um borð verður fertugur á morgun og ætlum við að græja köku með minnst 40 kertum fyrir hann að blása á....taka skal það fram að hann lítur ekki degi eldri út en 21...við ætlum að færa honum prins pólo sem er ættað frá PÓLLANDI en þaðan kemur ýmislegt sætt og gottttt.  Annars eru allir kátir og hressir hérna og sendum við baráttukveðjur til okkar ástkæra Stebba NAFNA og líka þeirra sem þetta lesa.



                                            
                                             Pakkað sem aldrei fyrr..

                                            




                     Tröllið frá Sultum arrggggggggggg koma svo





                                Djöfull er ég flottur sinnum minnst tveir



Kveðja frá yfirbloggarnum og smurpungnum loðna

Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640878
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:32:43