13.07.2009 13:27

Góðum túr að ljúka

Við lögðum af stað áleiðis heim klukkan 7:30 í morgun. Áætlað er að við komum í olíuhöfnina í Örfirisey um klukkan 23:00 í kvöld. Þar verður tekin olía og síðan landað inni í Sundahöfn við Skarfabakka.

Túrinn er búinn að vera fínn í alla staði og verður hans sérstaklega minnst fyrir frábært veður allan túrinn. Þetta er fyrsti túrinn frá því að við byrjuðum á tveggja trolla veiðum þar sem aldrei þurfti að kasta einu trolli vegna veðurs. Veiðin hefur líka verið fín á köflum og eru menn mjög sáttir við árangurinn.

Jóel og félagar fara síðan á sjóinn annað kvöld og óskum við þeim góðrar ferðar og hvetju þá til dáða í blogginu.

Stjánagengi þakkar fyrir sig í bili.


Gísli með eina af stærri gerðinni
Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613204
Samtals gestir: 158744
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:08:57