26.06.2009 23:18

Heitur pottur og næs!

Það er búið að vera frábært veður í dag þannig að menn þyrsti í að njóta sömu þæginda og landkabbarnir. Strákarnir, með Hjalla og Lilla í broddi fylkingar, tóku sig til og græjuðu eitt stykki heitann pott.

Um klukkan 10 í kvöld var allt klárt og var bátsmaðurinn fyrstur til að skella sér til sunds. Potturinn er það vel staðsettur að þar næst GSM samband eins og er. Alger snilld!


Báturinn í pottinum og Alli að tala við frúna í GSM síma



Það getur verið fallegt á sjónum
Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640878
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:32:43