26.06.2009 02:16

Björgunaræfing

Já gott fólk bátmannsvaktin er mætt með færslu.

Dagvaktin var frekar róleg hjá okkur í gær og var því haldin reykköfunaræfing. Ómar og Ægir voru fyrstir til að reykkafa svo fóru Keli og Gunni næstir inn, Bjarni og Denni fengu það hlutverk að leika meðvitundarlausa menn. Allt gekk vel en hápunkturinn var sennilega þegar Ægir var látinn bera og hélt hann að Gunni væri sá meðvitundarlausi, kvikyndisskapurinn kom fram í nokkrum á vaktinni og skiptum við um mann og endaði hann með að þurfa að bera Kela útúr klefanum sem er tölvuvert þyngri en Gunni, hann átti ekki til orð hversu þungur Gunni væri orðinn meðan á ferðinni stóð.



Ægir og Ómar klárir



Bjarni meðvitundarlaus



Gunni og Keli leita vel...



Ægir að bera kela



Denni dreginn eftir ganginum
Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612937
Samtals gestir: 158635
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:24:30