22.06.2009 07:18

Í ræktinni

Við viljum byrja á því að biðjast velvirðingar á því hversu langt er síðan við blogguðum síðast. En það eru nokkrar ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi þá hefur netsambandið verið skelfilegt undanfarna daga. Það þarf að lesa rækilega yfir hausamótunum á þjónustuaðilanum.

Í öðru lagi var verið að bíða eftir því að bloggari bátsmannsvaktarinnar myndi láta ljós sitt skína en að lokum brast þolinmæðin hjá stýrimannsvaktinni og enn og einu sinni bullum/bloggum við.

Hér hefur lífið gengið sinn vana gang eftir 17. júní bloggið. Menn hafa eitthvað verið að vinna í sínum björgunarhringjum og náðust myndir af Gunna og Ómari á fullu í ræktinni.

Endilega hvetjið bátsmannsvaktinni til afreka í blogginu - þeir geta verið svo ansi skemmtilegir þegar sá gállin er á þeim.


Gunni að brenna Fosternum eftir ferðina til Ástralíu í síðasta fríi



Ómar er búinn að vera rosalega duglegur í túrnum. Var 130 kg í upphafi túrsins!

Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640878
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:32:43