17.06.2009 01:18

Heimsókn í vélina

Við kíktum í heimsókn niður í vélarúm í gærdag. Hjalli vélstjóri var á vaktinn og gaf sér tíma fyrir myndatöku.

Eins og sjá má er annar tölvuskjárinn hjá honum dauður. Þetta er annar túrinn í röð hjá okkur þar sem tölvuskjár í vélinni gefur sig. Vélstjórarnir eru núna grunaðir um að vera að spila kappaksturstölvuleiki í vaktklefanum og frussa svona svakalega á tölvubúnaðinn. Þeir neita þessu staðfastlega.

Sem betur fer tókst að senda okkur nýja skjá úr landi og því geta Bjöggi og Co haldið áfram í kappakstrinum.


Hjalli hálf súr á svipinn, enda enginn kappakstur í gangi
Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640878
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:32:43