14.06.2009 07:12
Fréttir af Torginu
Héðan er lítið að frétt, í raun svo lítið að maður á í vandræðum með að finna eitthvað til að blogga um. En þar sem við lofuðum að vera duglegir í blogginu er best að bulla eitthvað.
Hjalli vélstjóri, Keli bátur og Nonni fóru yfir í Júlíus Geirmundsson í gær til að ná í freon á frystirinn hjá kokkinum. Þetta var fyrsta ferð þeirra á nýja léttabátnum og gekk hún vel.
Kokkurinn er á fullu að undirbúa sunnudagssteikina og fékk "hjálp" frá "messanum" í morgun. Skömmu eftir að myndin var tekin var "messanum" hent út úr eldhúsinu.
Endilega skrifið nú athugasemdir eða skiljið eftir kveðju í gestabókinni.
Þessi á ekki framtíð fyrir sér sem messi
Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640878
Samtals gestir: 164313
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:32:43