14.06.2009 07:12

Fréttir af Torginu

Héðan er lítið að frétt, í raun svo lítið að maður á í vandræðum með að finna eitthvað til að blogga um. En þar sem við lofuðum að vera duglegir í blogginu er best að bulla eitthvað.

Hjalli vélstjóri, Keli bátur og Nonni fóru yfir í Júlíus Geirmundsson í gær til að ná í freon á frystirinn hjá kokkinum. Þetta var fyrsta ferð þeirra á nýja léttabátnum og gekk hún vel.

Kokkurinn er á fullu að undirbúa sunnudagssteikina og fékk "hjálp" frá "messanum" í morgun. Skömmu eftir að myndin var tekin var "messanum" hent út úr eldhúsinu.

Endilega skrifið nú athugasemdir eða skiljið eftir kveðju í gestabókinni.


Þessi á ekki framtíð fyrir sér sem messi

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612939
Samtals gestir: 158637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:55:34