10.06.2009 18:47
Fanga útlitið
Núna er búið að raka rúmlega 10 manns í þessum túr. Ef þeir sem eru snögghærðir eru taldir með þá eru aðeins 4 menn hér um borð sem geta státað af sæmilegu magni af hári. Það náðist ekki að taka mynd af munkunum tveimur (Gunna og Ómari) en þeir fengu sérstaka meðferð í klippingu hjá Kela bátsmanni. Það verður bara að bíða betri tíma.
Annars sitja menn núna og horfa á landsleik Íslands og Belgíu í handbolta. Það er frekar rólegt yfir öllu hér á Torginu.
Biðjum að heilsa í land.
Alli og Bjössi kokkur
Áfram Ísland!!!
Lilli fékk mikið fyrir peninginn í sinni klippinu
Greinilega ekki mikið stuð á upphafsmínútum leiksins
Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613204
Samtals gestir: 158744
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:08:57