09.06.2009 13:39
Komnir á miðin
Þá erum við komnir á miðin og er bátsmannsvaktin að slaka trollunum í þessum skrifuðu orðum. Það liggur bara vel á mannskapnum eftir gott frí og allir klárir í slaginn.
Tvær rakarastofur hafa verið opnar á útstíminu, Kella Klipping og HostageHair (Gísla hár) og hefur sú þjónusta verið mikið notuð af áhöfninni. Láta menn vel af klippingunni, en eru sammála um að menn fá meira fyrir peninginn hjá Kela Klippinu, þ.e. það er tekið meira af hárinu þar.
Endilega skrifa í gestabókina eða athugasemdir við bloggið og við lofum að vera duglegir að blogga næstu 35 dagana.

Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 308
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612932
Samtals gestir: 158631
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:59:21