22.05.2009 04:41
Björgunaræfing.
Jæja góðir landsmenn. af torginu er það helst að frétta að veðrið er eins og best verður á kosið en rólegt yfir veiðunum. En e-hvað verðum við að dunda okkur við hér í nafla alheimsinns og var því ákveðið að blása til björgunaræfingar í nótt og setja þyngsta manninn á vaktinni (100+) í sjúkrabörurnar út á dekki og drösla honum upp í sjúkraklefa. Gekk það vonum framar og slapp sá slasaði að mestu óskaddaður úr þessum hildarleik. Látum fylgja með nokkrar myndir af atburðum næturinnar. kærar kveðjur. Ritstjórn Stýrimannsvaktarinnar.





Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613204
Samtals gestir: 158744
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:08:57