17.05.2009 08:33
Grátandi karlmenn.
Sælir aftur landsmenn til sjávar og sveita, nýja ritstjórninn vill þakka frábærar móttökur við síðustu færslu og viljum benda fólki á að það er ókeypis að kommenta á færslur og einnig að skrifa í gestabókina.En að máli málanna þá var Euróvision keppninn haldin i gær eins og flestir vita og voru fulltrúar okkar alveg til fyrirmyndir og náðu frábærum árangri og ætluðu menn alveg að tapa sér i gleðinni og var þar Elli vélstjóri fremstur meðal jafningja en hann vann pottinn góða og hefur ekkert til hans sést siðan en við höldum að hann eigi eftir að sjást i ræktinni næstu daga.......en stórkostlegt var að fylgjast með mönnum i gær meðan á keppninni stóð og lá við að hörðustu hetjur hafsins grétu og féllust sumir i faðma þegar 2 sætið var komið i hús.En annars gengur allt svipað hérna og safnast vel i starfsmannasjóðinn þvi það slæðist alltaf einn og einn hákarl með aflanum og situr nefndin sveitt núna að skipuleggja næstu gigg áhafnarinnar.Kv ritstjórn
Menn fylgjast spenntir með.
Elli orðin sigurviss en Ragnar ekki eins brattur.
Gunnþór afhendir Ella sigurlaunin
Hægt var að rekja slóðina eftir hann niður í vél.