15.05.2009 20:00
Menn að komast i stuð?
Jæja þá er komið að því að bátsmanns vaktin ætlar að girða sig i brók og koma með eina færslu(því ekki gerir stýrimannsvaktin það),en ein helsta ástæðan fyrir bloggleysinu er að tölvan hjá vaktformanninum hrundi þegar hann og litli netamaðurinn voru að hlusta "þungarokk" en ef þeir kalla rokk ömmuna Tinu Turner þungarokk þá leifum við þeim bara að hafa það þannig;)En annars er allt að verða vitlaust á göngunum útaf Evróvision keppninni sem verður haldin á heimaslóðum Alex á morgun og eru menn almennt sammála um gott gengi fulltrúa Íslands i keppninni og þeir bjartsýnusta ætla jafnvel að flagga á morgun,,,,,,,,,,,,,,veðbankinn er opin og allir búnir að spá og leggja kók og stykki undir,2 úr áhöfninni eru búnir að eiga afmæli i túrnum og eru það Stefán Hallgríms og Guðmundur Gylfason og fengu þeir að sjálfsögðu veislu frá kokknum af þvi tilefni og viljum við óska þeim til hamingju með það,Dagskrá GIN hátíðarinar er komin og líst mönnum mjög vel á þessa dagskrá og greinilegt að stjórnin er að vinna gott starf en mesta spennan er fyrir GIN cup fótbolta mótinu,
Annars gengur allt sinn vanagang og menn eru hressir og kátir að vanda en við leyfum nokkrum myndum að fljóta með,,,,,
Allt á fullu hjá "flokkaragenginu"
Ragnar og Gunnþór að hausa karfa
Norðfjarðar tröllið að taka á þvi
Ljósmyndir Gunnþór Sigurgeirsson