07.05.2009 12:06

Komnir í land - Jolla gengi farið á sjóinn

Við komum í land á þriðjudagsmorguninn með fínann túr. Jolli og Co fóru síðan á sjóinn strax þá um kvöldið.

Túrinn var annars í alla staði fínn, þrátt fyrir að það megi alltaf vera meiri kraftur í fiskeríi, betra veður, minna rifið o.s.frv. Við erum aldrei alveg ánægðir :)

Núna er bloggboltinn kominn yfir á Valda, Údda og félaga. Við sendum sérstakar baráttukveðjur til hirðljósmyndara þeirra og vonum að hann smelli af eins og brjálaður maður og birti myndir a.m.k. einu sinni á dag!

Látum fylgja eina mynd sem tekin var í upphafi síðasta túrs þegar við vorum að hífa í kaldaskít. Þetta er reyndar mjög óvenjuleg sjón á Guðmundi í Nesi því að hann er örugglega með þurrustu skipum á Íslandsmiðum.

Flettingar í dag: 89
Gestir í dag: 41
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613201
Samtals gestir: 158742
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:47:31