20.04.2009 01:13

Ýmislegt kemur upp með trollinu

Það eru ekki bara hefðbundnar nytjategundir sem við fáum í trollið. Það er algengt að fá hákarl hér á Torginu og núna um helgina hefur margt óvenjulegt komið upp með því.

Til að byrja með fengum við einn lítinn sel í trollið. Hann fylgdist spenntur með okkur í vinnslunni áður en honum var sleppt. Það fór vel á með honum og Nonna þegar við vorum að smúla eftir að hafa klárað haldið.

Í halinu þar á eftir fengum við upp grænt mótorhjól. Það er nokkuð heillegt, en þó vantar á það vinstri hluta stýrisins. Þegar að þessi bloggfærsla er skrifuð er ekki búið að taka mynd af hjólinu en hún verður sett inn um leið og það er búið.

Síðan fáum við oft mikið af stórlúðu hér grynnst á Torginu - og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá eru þær oft vel við vöxt.


Selurinn fylgist "spenntur" með


Nonni og selurinn að nýbúnir að smúla

Ekkert smá stykki, þ.e.a.s. lúðan

Flettingar í dag: 308
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612932
Samtals gestir: 158631
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:59:21