17.04.2009 17:54
Gæslan kíkti við
Það er allt ljómandi gott að frétta af okkur, veðrið er búið að leika við okkur síðustu daga hér á torginu og spá flestir því að sumrið sé á næsta leyti.
Landhelgisgæslan kíkti við hjá okkur í gær en þetta var hefbundið eftirlit og fundu þeir að sjálfsögðu ekkert að hjá okkur en þessir herramenn stoppuðu í 1-2 tíma um borð hjá okkur en stungu af rétt fyrir hádegismat, þeir vissu greinilega ekki hverju þeir voru að missa af því kokkurinn bar fram dýrindis lúðu og lúðusúpu.
Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613204
Samtals gestir: 158744
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:08:57