23.03.2009 15:41
Ónefndur úr leik
Jæja þá er komið að smá bloggi.Það bættust við tvö skip á torgið í fyrradag það eru Brimnesið og Snæfellið EA áður Akureyrin.það er búið að vera smá kropp í gullax karfa og lúðu sem sé mikið koktail fiskerí.Við hefðum vilja sjá meiri lúðuveiði en það er ekki á allt kosið.Það er búið að vera vorblíða í heila 8 daga á torginu sem segir okkur að það fari nú að bresta á sumar eftir ca 1 túr enn.Annars er bara allt meinhægt að frétta og stýrimannsvaktin stóð sig vel í síðustu bloggfærslu og vonum við að þeir láti ekki deigan síga í þeim efnum.Motturnar eru búnar að dafna vel síðan í síðustu færslu og fara þær að verða myndefni fyrir velunnara síðunnar.Búið er að panta veiðileyfi fyrir kallana upp á Arnarvatnsheiði í Júní og er það valinkunnur hópur og fer Ragnar fyrir flokknum að venju.Áf óviðráðanlegum orsökum verður enginn ÓNEFNDUR framar á síðunni og þökkum við honum kærlega fyrir að hafa lagt sitt af mörkum fyrir að hafa gefið okkur síðuriturum innblástur í skrif okkar og vitum við hreinlega ekki um hvað við eigum að skrifa á komandi tímum.
Saknaðar kveðjur bloggarar

Alex með góðan feng

Guðjón (Úddi) að vikta rauðu strákana
Saknaðar kveðjur bloggarar
Alex með góðan feng
Guðjón (Úddi) að vikta rauðu strákana
Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 308
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612932
Samtals gestir: 158631
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:59:21