18.03.2009 18:24

stýrimannsvaktin mætt.

Góðan dag góðir landsmenn. vegna fjölda áskorana er stýrimannsvaktin sest við skriftir og eftir að vera búnir að raða í okkur soðning að hætti Níelsar teljum við okkur færa í flestan sjó í netheimum, að öllu leiti nema beðið er eftir að ónefndur blási til námskeiðs fyrir stýrimannsvaktina og kenni þeim leyndardóma ljósmyndunar. þannig að ef vel gengur í þeim flóknu fræðum er jafnvel von á myndum frá þessari vakt fyrir páska. annars er heldur lítið um að vera á torginu um þessar mundir en kallarnir snöruðu þó einn gráan í morgun (Hákarl) og var hann snarlega tekin og skorinn eftir kúnstarinnar reglum í þágu starfsmannafélagsinns. Eitthvað gengur illa hjá okkur að fá ljóðskáld vaktarinnar til að opna sig en vonum að með vaxandi sjálfstrausti verði hann farinn að raða hér inn stökum af sinni alkunnu snilld áður en túrinn er úti. en þá að máli málana, heyrst hefur á göngunum að Arna hans Einars sé við það að fjárfesta í sleða eins og hún er búinn að vera að gera síðan í haust. og vonumst við til að dæmið gangi upp hjá henni fyrir rest. Biðjum að heilsa af torginu.

kveðja MOTTUGENGIÐ.

ps það er engin heitur í giskinu með aflann.
Flettingar í dag: 298
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612922
Samtals gestir: 158629
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:12:49