17.03.2009 18:28

Sá ónefndi óstöðvandi

Bátsmannsvaktin er búin að sjá um bloggið síðustu 3 túra og ekki komið snefill frá stýrimannsvaktinni ekki einu sinni myndir þannig að það er tímabært að velunnarar síðunnar kommenti og reki nú á eftir þeim enda miklu meira um blogg ef báðar vaktirnar blogga.Og vil bátsmannsvaktinn segja KOMA SVO STRÁKAR svo urðum við uppvísir að því að það er heljarinnar ljóðskáld á stýrimannsvaktinni og hann gæti verið með vísnahorn á síðunni.Annars af fréttum af torginu:Það er búið að vera hálf tíðindalaust frá helginni en gott veður þó frá sunnudegi.veiðin dagaskipt.Fréttum að LEEDSARARNIR hafi unnið um helgina og ætlaði allt um koll að keyra ,menn hópuðust á gangana í sigurvímu og var þar ónefndur fremstur í fríðum flokki.

Nú ætlum við að vera með smá spurningu til velunnara síðunnar og byðja þá um að giska hvað eru mörg tonn af grálúðu hér á ferðinni.Gæti verið verðlaun fyrir réttan aðila ef að ónefndum þóknast svo.Hann á heiðurinn af þessum myndum og veriði nú dugleg að gefa honum komment það er víst búið að hrauna nóg yfir greyið samt.

kv 50 round club


        
Eins og sjá má er bakborðsgengið bísna sennilegt að sjá að vanda



Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613209
Samtals gestir: 158745
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:30:02