Blogg

16.3.2009

Umfjöllun fjölmiðla um sjávarútveg

Stenst ekki að setja inn smá hugleiðingar hér eftir að hafa lesið tvo af stærstu vefmiðlum landsins í morgun. Það er alveg með ólíkindum hvað margir fréttamenn virðast vera illa að sér þegar kemur að útgerð og öðrum hlutum íslensks sjávarútvegs.

Máli mínu til stuðnings bendi ég á tvær fréttir. Sú fyrr er af mbl.is og fjallar um íslenskan "togara" sem er að landa aflanum í Bretlandi. Með greininni er birt mynd af umræddum "togara" og ef fréttamaðurinn hefði minnstu þekkingu á sjávarútvegi sæi hann strax að umrætt skip er ekki togari heldur línubátur. Hægt er að sjá fréttina hér Íslenskum skipum fagnað í Grimsby 

Þetta er reyndar ekki fyrsta fréttin með þessum misstökum. Hér er ein eldri Fleiri togarar landa í Grimsby

Hin fréttin er á visir.is og þar er verið að fjalla um grásleppuveiðar. Myndin sem birt er með fréttinni er alveg kostuleg. Ef þetta er nýr grásleppubátur þá skal ég éta sokkinn minn. Fréttina má sjá hér Grásleppuvertíð á fullt

Skrifað 16.3.2009 kl. 9:42 af Gísli

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 117
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 560
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 419574
Samtals gestir: 109061
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 09:48:06