15.03.2009 20:03

Ægir og Kári

Góða kveldið kæru landsmenn og aðrir velunnarar.
Hér á gvendinum hafa ekki verið unninn mikil afrek um helgina sökum þess að kári lét heyra allsvakalega í sér og ægir var nú eitthvað pirraður líka. En það er mál manna að nú sé skollið á vor og bara bongó blíða (mega tan) framundan.  Hafa menn þá um helgina haft meiri tíma til að einbeita sér að áhugamálunum s.s. facebook og fótbolta en það síðarnefnda fór víst ekki alveg eins til var ætlast, sem var mjög gott!  En við tókum nokkrar myndir af atburði helgarinnar......



                     Hér eru kallarnir á toginu og ægir að berja að dyrum...



Hér eru kallarnir svo byrjaðir að hífa og eru þetta þeir Alex og Einar the eagle að forða sér undan einni kaldri og höfðu þeir betur í þetta skiptið.
Flettingar í dag: 165
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640872
Samtals gestir: 164312
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:09:32