13.03.2009 16:39
litli netamaðurinn 40 ára
Litli netamaðurinn okkar átti afmæli í dag hann varð 40 ára og er það mál manna að hann hafi stækkað í nótt en enn notast hann við dvergasteininn í pökkun.hann kom með mackintosh dós
með sér en vaktin snéri hann niður og stal af honum dósinni og hámaði sælgætið í sig.En annars óskum við honum kærlega til hamingju með ( Stóráfangann )
Hér stendur stoltur afmælisdrengur við nammikrúsina sína
Hér afhendir Ragnar Gylfa nammidósina sem Gylfi kom sjálfur með
Hér er búið að stéla dósinni af afmælisbarninu
Eins og sjá má á síðustu myndinni þá var sukkið alveg gríðarlegt og liggja menn að vana lemstraðir um allt skip og fór ónefndur fyrir hópnum að venju