26.02.2009 19:41

Múkki eða Vélstjóri ??

Þetta er sönn saga sem kom fyrir á Hrafni Sveinbjarnar 
Eitt skiptið, þegar vélstjórinn dröslaðist niður í vaktklefa og kom sér fyrir framan tölvuna heyrði hann ankannaleg hljóð undir borðinu hjá sér. Hann stakk tríninu undir borðið og sá þar fullvaxinn múkka í makindum undir borðinu. Vélstjóranum brá alveg horttalega en lét ekki öskrin í múkkanum hræða sig meira og falaðist eftir honum, þá varð uppi fótur um fit og hófst þar mikill eltingarleikur sem endaði með því að Vélstjórinn náði kvikindinu og kom honum út. Þegar vélstjórinn var búinn að þessu fór hann vitaskuld rakleitt upp í borðsal og í hverju skrefinu sem hann tók magnast reiði hans. Þegar hann kom svo inn í borðsal hellti hann sér yfir mannskapinn fyrir þetta ódæði! Hann komst að vísu fljótlega í þrot um hvaða skaða múkkinn hefði geta gert og endaði á því að segja ... Helvítis Múkkinn hefði geta drepið á vélinni! þá sprakk salurinn úr hlátri og vélstjórinn fór í þjósti niður í vél aftur. Eftir þetta hafa múkkar sem hafa slæðst inná dekkið á Hrafni ávalt verið kallaðir vélstjórar.


Vélstjóri á flugi ??
Flettingar í dag: 165
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640872
Samtals gestir: 164312
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:09:32