20.02.2009 01:09

Mennirnir í brúnni

Netið hefur verið óvirkt hjá okkur síðasta einn og hálfan sólarhringinn og því höfum við augljóslega ekki getað bloggað. En nú þegar það er orðið virkt aftur höldum við ótrauðir áfram.

Það hefur aðeins vantað upp á það að við höfum sýnt myndir af öðrum en okkur dekkurunum. Þetta stendur til bóta. Við byrjum á þeim sem manna brúnna.

Myndirnar voru teknar fyrir helgi og sýna þá Stjána skipstjóra og Heiðar yfirstýrimann á fullu í vinnunni.

Vek sérstaka athygli á sokkunum hjá Stjána, en þetta eru miklir happasokkar (karfasokkar) sem dætur hans gáfu honum.


Karlinn í rauðusokkunum góðu


Heiddi er hálfnaður með skeggið sem hann safnar í hverjum túr

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612937
Samtals gestir: 158635
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:24:30