Blogg

12.2.2009

Það var rautt !!

Eins og áður hefur komið fram á síðunni þá er karfinn búinn að vera frekar sýnilegur þennan túrinn, það er búið að vera ágætis karfa veiði á daginn og hafa kapparnir í brúnni reynt við lúðuna þegar dimma tekur en því miður er hún búinn að vera í einhverju fríi blessunin.

Við erum nýbúnir að hýfa, ég stökk niðrí vinnslu og tók nokkrar myndir af stýrimannsvaktinni en því miður þá fann ég hvergi 2 stýrimann en ég hef nú lumskan grun um að hann hafi verið að leysa karlinn af í mat en menn hafa haft orð á því að 2 stýrimaður sé búinn að vera í óvengjulega góðu skapi síðustu 2 daga enda hefur hann sennilega góða ástæðu fyrir því.


Alli að flokka B karfan frá og raða inn á flokkarann


Denni við úrtínslubandið


Sá rauði á fleygiferð í hausarann

Skrifað 12.2.2009 kl. 18:53 af GINarar

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 560
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 419593
Samtals gestir: 109061
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 10:09:12