12.02.2009 01:08

Stund milli stríða

Það hefur verið nóg að gera hjá okkur undanfarið við að koma karfakvikindum niður í lest. Þar sem við erum nú ekki margir í áhöfn tekur það okkur aðeins lengri tíma en hjá hefðbundnum flakatogurum. En það er alveg mesta furða hvað gengur að vinna þetta, og þvílíkur munur eftir að millidekkið var tekið í gegn síðasta haust.

Og á milli þess sem menn vinna þá er slappað af og t.d. horft á fréttir og Kastljós. Ljósmyndari átti leið um setustofuna í kvöld í miðjum fréttatíma og smellti af nokkrum myndum.


"Glataði" sonurinn


Bátsmaðurinn lætur fara vel um sig
Flettingar í dag: 298
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612922
Samtals gestir: 158629
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:12:49