11.02.2009 01:01

Bjöggi kominn heim

Björgvin yfirvélstjóri komst ekki með okkur út í túrinn í síðustu viku en skilaði sér til okkar í kvöld. Hann fékk að fljóta með Grundfirðingi SH og sigldum við á móti þeim til að ná í hann. Einnig komu þeir með 30 pokarúllur fyrir okkur.

Veðrið var ekki alveg eins og best var á kosið þegar að farið var á tuðrunni yfir. Þetta varð smá sull og ævintýri en fór allt vel fram. Engar myndir voru nú teknar af þessu enda niðamyrkur.

Hjalla vélstjóra líst ekki vel á mótorinn á léttabátnum eftir þetta og er kominn fram á fremstu hlunn með að úrskurða hann látinn.

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612939
Samtals gestir: 158637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:55:34