01.02.2009 00:57

Torgið skartar sínu fegursta

Jæja þá er enn komið að smá bloggi.Eins og titill færslu segir þá er torgið að sýna sitt fegursta og vilja menn meina að það líkist pollinum í Eyjafirði á fögru vorkvöldi.Smá nudd hefur verið á grásunni síðustu daga en heldur er að draga úr herlegheitunum og er silver smeltinn farinn að sýna vörpunni mikinn áhuga ónefndum ljósmyndara til mikillar gleði.karfi gullax og lúða er blanda dagsins og eru menn í þrifum samfara þessari banvænu blöndu.Hvissast hefur út í messanum að lengingin (nei meinti nú aðgerðin) hafi tekist með ágætum á litla netamanninum og vilja bjartsýnustu menn (Einar) trúa því að hann geti nú skipt um hleranemana sjálfur,því menn eru orðnir langþreyttir á að lyfta honum upp í hlerann.En annars er allt gott að frétta héðan af torgi hins himneska og ætlar túrinn að enda með stæl í eldhúsinu hjá brytanum því að það eru fjögur afmæli í röð að bresta á.Við verðum svo í landi með pomp og pragt á þriðjudagsmorgunn og reiknum með að spússur okkar taki á móti okkur opnum örmum á kajanum.gott í bili og kannski látum við myndir inn seinna af lokasprettinum ef ónefndur ljósmyndara þóknast svo.

hvernig er það með gesti síðunnar veit einhver hver þessi ónefndi ljósmyndari er???????

gæti farið svo að verðlaun yrðu í boði fyrir rétt svar.

Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613209
Samtals gestir: 158745
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:30:02