26.01.2009 11:06

komnir heim (á torgið)

Jæja nú er komið að smá bloggi.Við erum komnir á torgið eftir að hafa hrakist undan veðri langt suður á melsekk og vorum við þar á karfaveiðum í 2 sólarhringa.Voru mörg skip að veiðum þar og veiði almennt góð.En við silgdum aftur norður á torgið í gær og erum að reyna við lúðu núna eftir karfa veiði síðustu 2 daga.það er farið að síga á seinni hlutann á þessum túr eða 1 vika eftir þannig að það fer að styttast í þrif og annað sem fylgir síðustu dögunum.Strákarnir af Brimnesinu komu til okkar í gær og lánuðu okkur teygjur fyrir aflanema enda mikil teygju afföll í karfanum.Við látum nokkrar myndir fylgja með vegna fjölda áskorana og eru menn rétt að ná sér eftir ofátið og afmælisveislurnar sem hafa verið síðustu daga.


               
      Strákarnir af Brimnesinu koma með teygjur og öxul í flokkara





                                      
                                 Skipt um lása aftan í hlera


                                             Karfahal
Flettingar í dag: 298
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612922
Samtals gestir: 158629
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:12:49