22.01.2009 20:06

Yfirvélstjóri 43 ára

Í dag varð Agnar yfirvélstjóri 43 ára og fjölmennti áhöfnin af því tilefni á Goldfinger og slettu ærlega úr klaufunum. (nei nei bara í huganum).En það var eins og við manninn mælt þegar stórviðburðir eiga stað hér á Gvendinum þá snaraði kokkurinn fram úr erminni líka þessari dýrindis veislu sem samanstóð af þurrkrydduðum lambadrifhásingum og bearnaise caloríusprengju og í desert fengu allir rjómatertu sjokk.En það var eins og fyrri daginn að menn kunnu sér ekki hóf og lágu menn lemstraðir hver í sínu horni eftir ofátið og fór þar fyrir hópnum ónefndur?...................Og vill áhöfnin óska Agnari til lukku með þennan áfanga.Ónefndi ljósmyndari síðunnar var aldrei þessu vant á staðnum og náði að handsama augnablikið(kodak moment)þegar Agnar fekk sér að smakka á kræsingunum og fáum við hér að sjá afraksturinn.


Agnar að fá sér af kræsingunum og sést glytta í stéfán frá Sultum

 

Flettingar í dag: 165
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640872
Samtals gestir: 164312
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:09:32