20.01.2009 13:23

Gómsætt súrmeti

Það var tilhlökkun að koma af vaktinn í morgun í þorraveisluna í hádeginu.Öll trog skipsins voru stífluð af súrum kræsingum harðfisk og kjömmum og eru þessi trog af stærri gerðinni.Rifu menn
óheyrilega í sig og liggja menn nú lemstraðir um allt skip eftir ofátið og fór þar ónefndur ljósmyndari síðunnar fyrir hópnum og það skýrir myndaleysið og hefur það hvissast út herna á göngunum að það verði annar í þorra í kvöld.En annars af máli málanna grálúðuveiðar.Vonsku veður og haugasjór er búin að vera í marga daga og aðeins fært með eitt troll þannig að ekki hefur runnið mikið vatn til sjávar af millidekkinu þessa bræludaga.
sendum facebook kveðju til landsmanna.
Flettingar í dag: 165
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640872
Samtals gestir: 164312
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 17:09:32