18.01.2009 13:24
Túrinn hálfnaður
Jæja þá er túrinn hálfnaður og ekkert merkilegt skeð það sem af er túrs,þetta gengur bara allt sinn vanagang.Við vorum einmitt að tala um það á föstudaginn að við værum búnir að vera heppnir með veður það sem af væri nýju ári fyrir utan þessa brælu um síðustu helgi.En það var eins og við manninn mælt að það er búið að vera bræla og vonskuveður síðan og verður fram á þriðjudag.
Erum að hnoðast með eitt troll í miklum straum og haugasjó þessa stundina en í gær fengu allar vörpurnar hvíld á sama tíma sem gerist ekki oft herna á Nesbúanum.Við fengum einn hákarl í morgun og er það fyrsti hákarlinn í túrnum. Við sendum ónefndan ljósmyndara á staðinn en auðvitað náði hann ekki myndum fyrr en hákarlinn var allur.Hann náði þó að mynda þegar síðustu beiturnar duttu ofan í móttökuna og verðum við að gera okkur þá mynd að góðu.Annars er bara allt gott af okkur af frétta og vill Hagfræðingur Gin.is koma til skila saknaðar og baráttukveðju til litla netamannsins sem á um sárt að binda þessa stundina.
Stéfán og Úddi henda beitunum ofan í móttöku