12.01.2009 23:11

Strembin helgi að baki

það kom að þvi að Torgið fór að sýna sitt rétta andlit með feitri brælu snjókomu og kulda og ennþá feitara rifrildi.Það er búið að vera trollbras á okkur yfir helgina og sérstaklega í gærkveldi en þá rifum við eitt trollið frekar illa.Og vonum við að það séu ný kaflaskil næstu daga.Ennþá mikið um skip í grennd við okkur en almennt lítið að hafa.Við þurfum svo að fara að uppfæra áhafnarlistann
og senda ónefndan ljósmyndara á vettvang með nýju myndavélina sína en hann kann ekkert á vélina enn sem stendur þannig að það getur orðið smá bið á myndum við verðum þá bara að senda
inn myndir á meðan hann lærir á vélina.Man utd menn eru sáttir með sitt hlutskipti eftir helgina en chelsea menn eru frekar niðurlútir og einn þeirra heldur til í sjúkraklefanum.Við viljum óska fyrrverandi áhafnarmeðlimi Hermanni Bjarnasyni til hamingju með afmælið á morgun og vonandi verður dekrað við hann út í Barentshafi þar sem hann er einmitt staddur núna um borð í Þór HF 4.jæja gott að sinni og munið eftir að kommenta

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612939
Samtals gestir: 158637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:55:34