08.01.2009 23:05

Hampiðjutorgið vinsælasta bleyðan í dag

Það er búið að vera mikil traffík hér á torginu og þurfa menn að taka númer til að renna sér í eina sköfu.Hampiðjutorgið virðist vera það eina sem bjargað getur málunum í dag.Skipum er þó að fækka enda er veiðin ekki upp á marga fiska.Annars er allt meinhægt hér á Gvendinum og erum við búnir að taka nokkrar góðar festur það sem af er á nýju ári en sluppu þær þó allar fyrir horn.
Með okkur í för að þessu sinni er eftirlitsmaður frá fiskistofu að taka út veiðar og vinnslu og líst honum bara vel á herlegheitin.Lifið heil og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612937
Samtals gestir: 158635
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:24:30