18.11.2008 18:31

Veiðifélagið hvorki fugl né fiskur

Jæja þá er nú komið að smá bloggi sáum hér á kommentunum fyrir neðan að við séum orðnir svo lélegir í blogginu að okkur er líkt við fljótandi drullu um borð í Pétri Jónssyni.

Við ætlum að segja frá þegar við í Jóels gengi stofnuðum veiðifélagið "hvorki fugl né fiskur" og fórum í Hólmavatn upp á Arnavatnsheiði.

Lagt var af stað um morguninn 25 ágúst nokkrir félagar veiðifélagsins og voru flestir komnir upp að vatni um hádegi. Menn komu víða að af landinu en flestir norðanlands. Byrjuðu allir að veiða fljótlega eftir að þeir komu og veiddu vel fram á kvöld.og voru þetta fiskar frá 1,5 pundum og upp í 7,5 pund og fékk Elías Wium stærsta fiskinn og á hann eftir að fá verðlaun fyrir. Grillið var tekið með og var grillað um kvöldmatinn lærissneiðar og var rauðvín og bjór með.Eftir matinn heldu menn áfram að veiða og veiddu fram í myrkur.Gistu menn svo í fellihýsi og var hlegið mikið um kvöldið. Svo um hádegisbilið daginn eftir var lagt af stað heim á leið og voru menn sammála um að ferðir af þessu tagi væru bara til að gera móralinn betri og aðeins að kynnast betur fyrir utan vinnutíma. Aflin var á milli 15-20 fiskar og var hann sendur í reykofninn í Engidalnum. Látum nokkrar myndir fylgja úr veiðiferðinni.

Annars er allt gott að frétta af Hampiðjutorginu og skiptast á bliðviðri og brælur og látum við hrun efnahagsástandsins ekki trufla okkur mikið, satt að segja erum við orðnir þreyttir á fréttum sem hafa lítið breyst um 30 daga skeið.

kv bloggararnir



           Elli og Jóel með stærsta og minnsta fiskinn



                           Elli með þann stóra



                               Grillveislan góða
Flettingar í dag: 308
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612932
Samtals gestir: 158631
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:59:21